Prestafélagsritið - 01.01.1933, Blaðsíða 131
124
.Takob Jónsson
Prestafélagsrltifi.
20—21.Sum svara með orðalagi greinarinnar, önnur breyta
út af þvi, en reyna að koma hugsuninni í sín eigin orð;
t. d. með því að segja, að guðsríki sje í sál guðelskandi
manns; i hjörtum manna; í öllum þeim, sem trúa á Guð
og breyta eftir boðum hans, o. s. frv. — 3. spurningin
tryggir það, að liugsað liafi verið um samlíkingu Jesú
um frækornið, áður en komið er í tímann. Eitt bendir á,
að guðsríki þróist innra með manninum, annað, að það
beri ávöxt út um allan heim, fyrst sé það „lítið“, en verði
„stórt“ o. s. frv. — Þegar komið er að liúsbónda vín-
garðsmannanna, kemur undir eins i ljós, að einhverjum
hefir fundist ranglátt að borga þeim ekki mest, sem lengst
unnu. Aðrir halda fram réttlæti liúsbóndans og styðja
skoðun sína með þvi, að réttlæli kærleikans sé æðsta
réltlætið, að hann hafi haldið gerða samninga, og loks,
að það hafi ekki verið sök þeirra, sem komu síðast, að
þeir unnu ininst, því að þeir liefðu ekki getað fengið
atvinnu fyr. — I kenslustundinni var svo bygt á því,
sem fram kom hjá börnunum, og rætt um sáðmannsstarf
Krists, útbreiðslu rikisins og að lokum guðsríkisgæðin
og það réttlæti, sem þeim er úthlutað eftir og sem ríkja
skal yfirleitt í guðsríki.
í hinni kenslustundinni var umtalsefnið: Iðrun og fyr-
irgefning. — 1 það sinn var engin ritningargrein lesin
heima, en 5 spurningum svarað: 1. 1 livaða sögum í biblíu-
sögunum er talað um iðrun? 2. Hvaða munur er á iðr-
un Péturs og iðrun Júdasar ? 3. Veiztu dæmi þess, að
Jesús fyrirgæfi syndir? 4. Hvaða áhrif hafði fyrirgefn-
ingin á mennina? 5. Hvaða dæmisögur sagði Jesús um
fyrirgefningu Guðs? — Til þess að svara þessum spurn-
ingum vel, þarf töluverða yfirferð og athugun. Dæmin
um iðrun voru tekin bæði úr Gamla- og Nýja-testa-
mentinu; muninum á Pétri og Júdasi lýstu mörg aðeins
með því að minna á, hvemig iðrun þeirra hefði komið
fram liið ytra, sum hugsuðu lengra og bentu á það, að
annar hefði lifað lífinu áfram og bætt fyrir yfirsjón sína,