Prestafélagsritið - 01.01.1933, Qupperneq 193
186
Frá norræna biskupafundinum. Prestaféiagsrítíö.
Var síðan eki'ð í bifreiðum út lil fundarstaðarins, Nádendal, sem
er 15 röstum vestar en Ábo og sögulega merkur staður vegna
Birgittina-klausturs, sem þar var á miðöldunum.
Eftir að snæddur hafði verið morgunverður og fundarmönn-
um visað til verustaða meðan á fundarhöldum stæði, var fund-
ur settur í svokölluðu Brunnshúsi. Bauð erkibiskup Ingman
fundarmenn velkomna með einkarhlýju ávarpi, en erkibiskup
Svía, Erling Eidem, flutti siðan ágætt erindi um „Kirkjuhugtakið
á postulatímabilinu“. Kl. 4% siðd. var umræðufundur um „starf-
ið að útbreiðslu guðleysis á Norðurlöndum“. Aðalræðumenn-
irnir voru Gummerns biskup i Tannnerfors, Ostenfeld Sjálands-
biskup, Lunde Oslóarbiskup og 'Widner „pastor primarius“ i
Stokkhólmi, og lýstu þeir hver um sig þessu fjandsamlega nið-
urrifsstarfi, eins og það hefir verið reklð í landi hvers þcirra.
Einna átakanlegust var lýsing hins finska biskups á starfi þessu,
eins og það hefir verið rekið meðal Finna fyrir atbeina Sovét-
stjórnarinnar. Lauk þessum fyrsta degi með bænagjörð í sam-
komusalnum, og talaði þar sá, er þetta ritar.
Fimtudag kl. 8% liófst fundur að nýju með morgunbæna-
gjörð. Hana flutti forseti norsku kirkjunnar í Vesturheimi,
Aasgaard biskup. Kl. 9% flutti Aulén biskup í Strengnesi erindi
út af orðunum í Matt. 18, 21n. og ld. 10% hófust umræður um
afstöðu kirkjunnar til friðarhreyfingarinnar. Þrír menn reifuðu
málið. Fyrstur talaði Ingman erkibiskup: Kirkjur Norðurlanda
og varnarmálin. Því næst Petersen biskup frá Stavangri: Er frið-
arhreyfingin tálvon? Og loks Bergquist biskup í Luleá: Kirkjan
og friðarhreyfingin. Urðu um þetta þýðingarmikla og einkar
aðkallandi mál hinar fjörugustu umræður. Allir vildu ræðu-
ínenn efla frið i löndunum, en um það voru aftur skiftar skoð-
anir, hvort tiltækilegt væri að liælta nú þegar öllum varnar-
ráðstöfunum með þjóðunum. Sérstaklega voru Finnar því mjög
andvígir.
Kl. 3% heimsóttu fundarmenn forseta Finnlands, Svinhufvud,
á sumarbústað hans, Gullranda, skamt frá Ábo. Fengu þeir þar
hinar hjartanlegustu viðtökur. Ávarpaði Eidem erkibiskup for-
setann fyrir hönd gestanna, en hinn aldraði og öldurmannlegi
forseti svaraði með einkar fallegri ræðu.
Kl. 9% um kvöldið flutti Erik Aurelius biskup í Linköping.
bænagjörð i samkomusalnum.
Föstudagsmorgun flutti Lövegren biskup morgunbænagjörð
í klausturkirkjunni í Nádendal, en að afloknu morgunborðhaldi
flutti Westergaard biskup i Ribe erindi út af orðunum i Jóh.
11, 40. Kl. 10 % hófust umræður um helgisiðabsekur þær, er