Prestafélagsritið - 01.01.1933, Blaðsíða 46
40
Jón Helgason:
Prestafélagsritlð.
Annað atriði, sem Schweitzer heldur fram og ýmsir
liafa hneykslast á, er skoðun hans á /jo/kvæni heiðinna
svertingja. Hann neitar því engan veginn, að einkvæni
sé hugsjónartakmarkið, sem stefna eigi að. En jafnsann-
færður er hann um, að óheppilegt sé að byrja starf sitt
meðal þessara hálfviltu manna með því að amast við
fjölkvæni þeirra og heimta af þeim einkvæni. Það væri
blátt áfram sama sem að ráðast á það félagslega fyrir-
komulag, sem þessir menn hafa alist upp við kynslóð
eftir kynslóð. Hið siðferðilega takmark sé vitanlega ein-
kvænið, en þvi verði ekki náð með þvi þegar í stað að
heimta einkvæni af þessum mönnum, lieldur eigi því að
verða náð fyrir eðlilega siðferðilega þróun, samskonar
og forðum átti sér stað í Israel. Þeir liafi upphaflega ver-
ið fjölkvænismenn, en síðar orðið einkvænismenn jafn-
framt því sem allar ástæður þeirra breyttust.
Af þessum og öðrum fráhrigðilegum skoðunum Schweit-
zers hefir það leitt, að lieyrzt hafa raddir, sem eklci vildu
viðurkenna starf Scliweitzers sem trúboðsstarf í orðs-
ins vanalegu merkingu, heldur aðeins sem mannúðarstarf
i kristilegum anda, með því er óneitanlega gefið i skyn að
mannúðarstarfið i kristilegum anda sé óæðra trúboðs-
starfinu. En er nokkurt réttlæti i öðru eins og þvi, að
vilja synja um trúboðsheitið manni, sem knúður af inni-
legum og fölskvalausum kærleika, sem fagnaðarerindi
Jesú Ivrists hefir vakið i sálu hans, yfirgefur alt, til þess
að helga lif sitt og krafta starfinu að því að lijálpa og
líkna þeim, sem ijágstaddir eru, i líkamlegri eymd
þeirra? Vitanlega dettur engum, sem þekkir kærleiks-
kenningu Jesú, slikt í liug. En þar við bætist, að mann-
úðarstarfsemi Schweitzers er engan veginn einskorðuð
við likamann og líkamlegu meinin. Hann hugsar áreiðan-
lega ekki síður um sálina, þótl lækningar hinna líkam-
legu meina gæti mest út á við. Því fer mjög fjarri, að
hann álíti þessum mönnum enga þörf á annari lífsskoð-
un en þeirri, sem þeir liafa alist upp við með öllum þeim