Prestafélagsritið - 01.01.1933, Blaðsíða 159
Hrestafélagsritiö.
PRESTAFÉLAGIÐ.
1. Bókaútgáfa.
„Prestafélagsritid'“ kemur nú til manna í fimtánda sinni, og
eru vinir þess beSnir að athuga kostaboð þau til nýrra áskrif-
enda, sem auglýst eru á öðrum stað í ritinu.
„Kvöldvökur l Kennaraskólanum", hin afarvinsœla bók séra
Magnúsar Helgasonar skólastjóra, hefir selst svo vel, að likur
eru til, að hún verði uppseld áður en langt líður.
Þá er félagið að gefa út nýja bók eftir dr. theol. Björn B.
Jónsson, prest í Winnipeg. Bókin heitir „Guðsriki“ og er efni
hennar: I. Upphaf ríkisins hér í heimi. II. Konungur ríkisins.
III. Þegnar ríkisins. IV. Löggjöf ríkisins. V. Útbreiðsla rikisins.
VI. Stofnanir ríkisins. VII. Fullkomnun rikisins. Eru þetta 7
erindi, sem höfundur flutti í sóknarkirkju sinni í Winni-
peg árið 1931 og margir þar vestra óskuðu, að birtust á
prenti. Þarf því ekki að efa, að bókinni verði vel tekið vestra
og að hún verði þar fjölda manna kærkomin jólagjöf. En vér
vonum, að hún fái einnig góðar viðtökur hér heima, þar eð
séra Björn er þjóðkunnur maður vor á meðal. Þeir, sem lesið
hafa „Sameininguna“ eða „Lögberg“, vita, hve ágætur rithöf-
undur liann er og prédikari.
2. Fastar nefndir.
Um starfsemi föstu nefndanna vísast til skýrslnanna frá þeim,
sem birtar eru hér i ritinu á öðrum stað.
En nefndirnar skipa þessir:
Æskulýðsnefnd: Séra Friðrik Hallgrímsson, formaður; séra
Eiríkur Brynjólfsson; séra Þorsteinn Briem, ráðherra.
Samvinnunefnd um félagsmál: Háskólakennari Ásmundur
Guðmundsson, formaður; séra Árni Sigurðsson fríkirkjuprest-
ur; séra Brynjólfur Magnússon; prófastur Eiríkur Albertsson;
séra Ingimar Jónsson, skólastjóri.
Samvinnunefnd um líknarmál: Cand. theol. Sigurbjörn Á.