Prestafélagsritið - 01.01.1933, Page 60
54
Árni Sigurðsson:
Prestafélagsritié.
myndina, og þózt knúður til að gera eftirmyndina
sem bezt. Sál sína hefir hann lagt í verk sitt, verið í
því allur, lieill og sannur. Þessvegna er þessi Krisís-
mynd laus við alt hið væmna og ókarlmannlega, er
slcemt hefir svo margar Kristsmyndir fyrri og síðari
alda. Hún lýsir eðlilega lyndiseinkunn, sem er ákveðin,
heii og hrotalaus. Hún sýnir, að þarna vildi listamaður
lýsa rétt því„ sem hann hafði séð. Hvort heldur hann
gerði myndina af listamannsáhuga einum, eða efíir
beiðni annars manns er myndina vildi eignast, skiftir
engu í þessu sambandi, heldur hitt, að listamaðuiinn var
gagntekinn af viðfangsefninu, að honum tókst að sýna
eigi aðeins hið líkamlega form, heldur og að nokkru að-
alsmerld hins guðdómlega anda, er i þessum líkamsbú-
stað bjó og helgaði hann. Sannur listamaður er ekki bund-
inn við efnið eitt, og ytx-a form þess. Hann líkir ekki eft-
ir náttúrunni, heldur finnur hann andann í viðfangsefn-
inu, og lætur hann lýsa sér sem hezt í listaverkinu“.
„Þannig“, segir höf., „er þessi Kristsmynd frá Jerú-
salem gerð. Og hið merldlega er, hversu hún minnir á
Krisísmyndirnar, sem tóku að verða til eftir stefnubreyt-
inguna á 3. og 4. öld, hvernig sem á þeim skyldleika
stendur, þar sem þessi mynd hefir verið týnd og dulin
þar til fyrir rúmum 25 árum. Með engu móti getur
Kiústsmynd þessi verið mótuð eftir hinum yngri vegg-
myndum í Katakomhunmn, því að hún ber með sér öil
einkenni grískrar fomlistar“. „Katakombumar fundust
aftur“, segir höf. „árið 1578, er þær höfðu lengi dulisí
mönnum niður í jörðinni, og það er alveg víst að lista-
stíllinn á Kristsmyndinni frá Jerásalem á ekkert skylt
við 16. eða 17. öldina“.
Loks segir höfundurinn um mynd þessa: „Hver ein-
asti maður, sem séð hefir þessa Kristsmynd frá Jerú-
salem siðan hún fanst, án þess að vita nokkuð um hana
áður, hefir svarað spurningunni um, hver þetta sé, með
orðunum: Það er Kristur. Þetta eru menn af öllum stétt-