Prestafélagsritið - 01.01.1933, Side 48
42
Jón Helgason:
Prestafélagsritið.
skapi næst að halda, að talsverður sannleikur felist í
þeim orðum.... Einmitt hjá slíkum mönnum er viður-
tækileikinn fyrir fagnaðarmál Jesú hvað mestur. Og það
er kristindómurinn með sigurkrafti sinum, sem öllum
iífsskoðunum fremur á erindi til þeirra. Fyrir kristindóm-
inn styrkist lyndseinkunnin og festist öll skapgerðin.
Og fyrir ljósi kristindómsins verður hjátrúin smámsam-
an að þoka“.
Fyrir þvi fer Schweitzer yfirleitt hinum lofsamlegustu
orðum um trúboðið eins og það víðast er rekið á vorum
timum, enda þótt hann hafi eitthvað að athuga við sjálfa
aðferðina, og um fádæma fórnfýsi trúboðanna, sem að því
starfa, bæði karla og kvenna. Hann dáir sérstaklega starf-
semi þeiiTa trúboða, sem hann hefir starfað í námunda
við suður í Kongólöndunum, hve vel þeir hafi reynst sér,
live vel þeir liafi, er til lengdar lét, skilið starf hans og
verið honum innanhandar og stutt hann í hvívetna, ekki
sízt eftir að heimsstyrjöldin skall á. Hann er ekki í nein-
um vafa um, að kristna trúin eigi dýrlegar sigurvinning-
ar fyrir höndum á komandi tið og þá ekki sízt lækninga-
trúboðið.
Aðalmeinið telur hann vera það hve fáir þeir séu enn,
sem fáist til að sinna þessu starfi, í samanburði við fjöld-
ann mikla, sem biði eftir því að blysi liins fórnfúsa
mannkærleika verði brugðið upp f>TÍr þeim. Hin tíman-
lega eymd manna víðsvegar um hinn heiðna heim ein út
af fyrir sig ætti að vera kristnum mannheimi nægileg
hvöt til þess af alvöru að leggja liönd á plóginn í Drott-
ins nafni. Þótt blöðin þegi um þessi efni, megum vér
ekki láta þeirri sáru neyð ósint. Það væri hinn mesti á-
byrgðarhluti fyrir hinn kristna heim. Verkefnin, sem
hér eru fyrir hendi eru í reyndinni fleiri en tölu verði
á komið og jafnframt margþættari en flesta grunar. En
þau eru alt að einu mjög aðkallandi. Mætti aðeins takast
að koma kristnum heimi i skilning um, að hér er að
ræða um beina skyldu, sem Jesús og trúarbrögð hans