Prestafélagsritið - 01.01.1933, Síða 141
134
Dagbjartur Jónsson:
Prostafélagsritift.
ir og reyndir nienn. Höfðu þeir mikil áhrif á fangana með
ræðum sínum, er voru skýrar og ljósar, og beint bæði
að höfði og hjarta. Einnig áttu þeir samræður við fang-
ana, hvern fyrir sig. Fóru þær fyrst fram í viðurvist varð-
ar, en brátt vöktu trúboðarnir svo mikið traust á sér, að
fangelsastjórnin ákvað að láta þá fá lykla að fangaklef-
unum. Var þessi ívilnun mikils virði fyrir trúboðana, sem
heimsækja árlega fleiri þúsundir klefa og eiga einka-
samtöl við fangana um andleg og heilög málefni. Gætu
þeir sagt margar áhrifarikar sögur um það, hvernig þjak-
aðar sálir hafa í allri einlægni sagt þeim frá leyndarmál-
um sínum, sorgum og áköfu samvizkubiti og ógleyman-
legum dæmum um iðrun og afturhvarf.
Kventrúboðar Kirkjuliersins fengu einnig leyfi til að
lieimsækja kvennafangelsin. En þessar heimsóknir eru
ekki eina starfið, sem þær vinna í þágu fanganna. Jafnvel
þýðingarmeiri þáttur í starfi þeirra er unninn i sambandi
við konur og fjölskyldur manna, er dvelja langdvölum í
fangelsum og oft eru í sárustu neyð. Þegar eftir að byrj-
að var að heimsækja fangelsin, kom í ljós, hversu brýn
nauðsyn væri að lijálpa fjölskyldum fanganna. Fangelsis-
prestar og trúhoðar þekkja mörg dæmi þess, að fangar
líði sárar hugraunir vegna nánustu ástvina sinna. Á þess-
um göfugu tilfinningum fanganna hyggja trúboðamir
mikið starf, með ágætum og varanlegum árangri. Leitast
er við að nálgast fjölskyldurnar einslega og með varúð
og hjálpa hverri og einni í samræmi við þarfir hennar.
Reynt er að veita vinnu fremur en gefa gjafir. Oft er
liægt að veita vinnu við sauma eða þvotta á sjálfum heim-
ilunurn. Þar sem börn hinda ekki móðurina, tekst oft að
útvega henni stöðu. — Þessi starfsemi Kirkjuhersins fyr-
ir fangana hefur oft leitt til fullkomins afturhvarfs þeirra.
óskaddað heimili og ágæt kona, sem lialdið hefir öllu í
horfinu í fjarveru manns síns, er mikil lijálp, en heimili
i rústum mundi aftur á móti að öllum líkindum vísa veg-
inn aftur til fangelsisins.