Prestafélagsritið - 01.01.1933, Síða 161
154
Prestafélagið.
Prestafélagsritið.
til samvinnu og töluðu þeir nœstir Aðalsteinn Eiriksson, séra
Hálfdan Helgason og séra Ólafur Magnússon.
Séra Ásmundur Guðmundsson hafði framsögu um samvinnu
að kristindómsfræðslu og séra Eiríkur Alberlsson um sam-
vinnu að menningarmálum. Umræður urðu mjög fjörugar og
hnigu á einn veg um það, að prestar og kennarar ættu að
starfa í sameiningu að kristilegri menningu þjóðarinnar og
halda þeim samtökum, sem nú væru liafin. Myndi hvorum
um sig að því hinn mesli styrkur og það verða ungu kyn-
slóðinni til heilla og þroslca. Létu menn í ljósi þá ósk, að
þessum sameiginlega fulltrúafundi mætti fylgja aukin kynni
og samvinna milii presta og kennara um land alt.
Fundurinn kaus í nefnd 2 presta og 2 kennara til þess að
gera tillögur um kristindómsfræðslu og kenslubækur i þeirri
grein og leggja þær svo fyrir prestafund og kennaraþing næsta
ár. í nefndina voru kosnir: Ásmundur Guðmundsson, {séra
Hálfdan Helgason, Aðalsteinn Sigmundsson og ólafur Þ-
Kristjánsson. En til vara Sigurður P. Sívertsen og Gunnar M.
Magnússon.
Ennfremur var kosin 6 manna nefnd til þess að hafa á hendi
aðalframkvæmdir milli fulltrúafunda og efla samvinnu presta
og kennara um menningarmál. Þessir hlutu kosningu: Aðal-
steinn Eiriksson, séra Eiríkur Albertsson, séra Garðar Þor-
steinsson, Hallgrímur Jónsson, Sigurvin Einarsson og séra
Þórður Ólafsson. En til vara Arngríinur Kristjánsson og séra
Árni Sigurðsson.
Fundurinn fór fram liið bezta og varð til þess að auka skiln-
ing og sainhug ineð kennurum og prestum.
4. Deildir félagsins.
Prestafélag Vestfjarffa“ gaf úr órsrit sitt „Lindina“, 3. árg->
haustið 1932. Er það fjölbreytt og mjög myndarlegt rit, seni
flytur trúarljóð og ræður, greinar um kristileg og kirkjuleg
efni, jólasögu, kirkjulegar fréttir, myndir, ritfregnir o. ó-
Lýsir séra Halldór Kolbeins tilgangi ritsins á þessa leið:
„ „Lindin“ vill vera farvegur fagnaðarerindisins. Hún vill vera
ljóslind boðskapar Jesú Krists“ — Er það gleðiefni að „Lind-
in“ gat haldið áfram að koma út, og er það einlæg ósk mín, að
útgefendum takist sem bezt að ná þeim ásetningi sínunt,
„að „Lindin" nái háum aldri og komist inn á hvert heimili á
Vestfjörðum“. — Fundargerðir frá aðalfundum félagsins 1931
og 1932 eru í „Lindinni“ og verður að nægja að vísa til þeirra.
Um fundinn í Bolungarvík vil ég aðeins taka þetta fram: Bróð-