Prestafélagsritið - 01.01.1933, Síða 24
18
Jón Helgason:
Prestafélagsritiö.
á meðal nál. 400 konur) starfi i heiðnum löndum, Ræður
að líkum, að þetta hrökkvi ekki langt þegar litið cr til
þess hve mikil neyðin er og sár þörfin á hjálpandi hönd-
um og liknarfúsum hvarvetna þar sem trúhoð er rekið.
Fullur helmingur þessara lækningatrúboða eru Bretar
og Ameríkumenn. En jafnframt þvi sem trúboðsiækn-
unum hefir fjölgað, hefir einnig fjölgað sjúkrahÚBum
og allskonar lilmarstofnunum í samhandi við trúboðs-
stöðvarnar viðsvegar með heiðnum þjóðum — tii þess
að trúboðslæknarnir geti því hetur stundað sjúklingana,
sem lil þeirra eru fluttir. Og úr öllum áttum berast ein-
róma fregnir um það, livilík hjálp trúboðinu sé að þessari
mannúðarstarfsemi. Meira en nokkuð annað greiði hún
trúboðinu leið til iijartnanna og stuðli að því að vinna bug
á hleypidómum manna gegn trúboðinu og bæla niður
rangar skoðanir þarlendra manna á eðli þeirrar lífsskoð-
unar, sem það hefir á boðstólum. Menn sannfærast um, að
ekkert geti verið að ótlast af lifsskoðun, er eigi sér aðra
eins játendur — jafn auðugir og margir þeirra revnast
að fórnfýsi og sjálfsafneitun þ. e. að lifandi og slarfandi
kærleika til þeirra, sem bágast eiga.
Viðgangur trúboðsins meðal heiðingjaþjóða á siðari
árum er ekki hvað minst að þakka lækninga-trúboðinu
eða slarfi trúboðslæknanna, þeirri frábæru eiju og óþrot-
legu fórnfýsi, sem þeir liafa margir hverjir sýnt í verk-
inu, og liversu j>eir hafa látið verk sín hera vitni um á-
gæti þeirrar trúar, sem knúði þá til starfsins og hélt þeim
uppi í iiinni margvíslegu baráttu, sem starf þeirra liafði í
för með sér.
Um einn þessara mannvina, er helgað hafa lækninga-
trúboðinu líf sitt og krafta, álti grein þessi litilsháttar
að fjalla, og það um einn þeirra, sem mesta athygli hefir
á sér vakið. En það er trúboðs-læknirinn Albert Schweit-
zer, sem enn er á lífi og starfar suður í Kongólöndum
meðal hálfgerðra villimanna og mannæta. Er hann að
því leyti frábrugðinn öllum öðrum trúboðslæknum, sem