Prestafélagsritið - 01.01.1933, Blaðsíða 77
Prestaféiatfsritie.
Helgisiðabókin nýja.
71
Það er margföld reynsla fyrir því um öll kristin lönd,
að áhrifin, sem guðsþjónustur kirkjunnar hafa á menn,
eru að miklu leyti komin undir þátttöku safnaðanna.
Sú þátttaka getur verið næsta ólík, eins og öllum er
kunnugt. Sumir koma áður en guðsþjónustan byrjar og
fara ekki úr kirkjunni fyr en öllu er lokið. Aðrir koma
°f seint og fara út áður en guðsþjónustan er á enda, og
valda á þann hátt ókyrð og truflun. Þótt ekki sé litið til
annars en þessa eins, á þessa einu hlið málsins, þá þekkja
allir kirkjugestir, hve miklu þetta getur valdið um áhrif
guðsþjónustunnar. öll tilbeiðsla er háð lögmáli hljóð-
feikans. Það þarf að vera hljótt í sálu mannsins, til þess
að hann geti tilbeðið drottin, en sá hljóðleikur truflast
újá mörgum eða flestum, ef ekki er hljótt i kringum þá.
~~ En það er fleira en þetta eitt, sem hér kemur til greina.
^að kemur bezt í ljós, ef vér athugum hina ýmsu liði
guðsþjónustunnar. Þeim má raða í fimm flokka við al-
uienna guðsþjónustu. Fyrst eru bænirnar: upphafsbæn,
kollektur, stólhænir og tónbænir eftir prédikun. Þá eru
sálmarnir. Þá víxlsöngvarnir á undan og eftir prédik-
un. Þá
er ritningarlestur og tón, bæði frá altari og af
Prédikunarstól. Og loks prédikunin.
Hugsum oss nú hluttöku manna, þegar um þessa ýmsu
Hði er að ræða. Vér vitum hve mismunandi sú þátttaka
getur verið. Kirkjugesturinn getur verið aðeins áheyr-
°ndi, kominn í kirkjuna aðeins til þess að hlusta á prest-
inn og hlusta á sönginn og annað, sem þar er fram bor-
ið. Og hann getur verið næsta ólíkur sem hlustandi. 1
^irkju sem annarsstaðar má hlusta með æði ólíku hug-
^þeli, eins og öllum er kvmnugt og hér er ekki þörf á
að lýsa. — Kirkjugesturinn getur einnig verið meira en
aheyrandi, hann getur haft með sér sálmabók og sungið
afla sálmana með. Á þann hátt getur söngurinn orðið
safnaðarsöngur, þegar margir syngja með. En fyrir þvi
er aldareynsla, að fátt getur eins orðið mönnum hjálp
úl þess að lyfta huga sínum upp til hæða eins og söngur