Prestafélagsritið - 01.01.1933, Blaðsíða 191
184
Erlendar ljækur.
Prestafélagsritið.
mönnum, seni minst er í þessum árgangi, nnmu kunnastir hér
a landi þeir Jakob Appel, lýöháskólastjóri i Askov og um eitt
skeið kirkjumálaráðherra (d. 31. des. 1931), og dr. F. C. Kra-
rup, prestur í Sórey, einn af frumlegustu og þektustu guðfræð-
ingum Dana á síðasta mannsaldri (d. 27. des. 1931).
„Dansk-islandsk Kirkesag. Meddelelser fra Forretningsud-
valget“ 1932 og 1933.
Þar eð gjöra má ráð fyrir því, að flestir eða allir prestar
vorir Iesi þetla blað, skal efni þess ekki rakið hér. En ekki
má minna vera, en að ritstjóranum og þeim, er að blaðinu standa,
séu fluttar þakkir fyrir það, hve trúlega stefnt er að því marki,
að tengja systurkirkjurnar, dönsku og islenzku, sem nánustum
vináttuböndum, á gundvelli aukinnar kynningar og gagnkvæmr-
ar virðingar. Blaðið er ritsjóra þess og útgefendum til sæmdar.
„Bræsteforeningens Blad‘‘ 1932—1933. Blað þetta er vikublað,
en aðallegast eða eingöngu ætlað prestum. Mér þykir altaf vænt
um komu þess, því að það flytur fljótt og vel margvíslegan
kirkjulegan fróðleik.
„Nordisk Missions Tidskrift" 1932—1933 er fróðlegt rit fyrir
alla þá, er vilja fylgjast með í því, er gjörist á kristniboðssvið-
inu. Margir ágætir menn standa að tímaritinu.
S. P. S.
Norskar bækur.
„Fadervár" utlagt av Ivar 1 Velle. Med tcgninger af Per Vige-
land. — Oslo 1932. Lutherstiftelsens Forlag.
í fyrra var í „Prestafélagsritinu“ getið hugleiðinga út af drott-
inlegu bæninni „Faðir vor“ eftir danska guðfræðinginn dr.
Neiiendam. Bók sú, sem hér að ofan er nefnd, eftir norska guð-
fræðinginn I. W., er um sama efni og einnig vel skrifuð og
prýðilega útgefin. Er höf. áður kunnur fyrir hina alþýðlegu
kirkjusögu sína, er kom út á árunum 1930—31 og á sínum tíma
var getið hér í ritinu.
„Fra religionens verden. Innförelse i religionshistorien“ av
Karl Vold, prófessor ved Menighedsfakultetet. — Oslo 1932. Luth-
stift. Forlag. —
Bók þessi hefir mikinn fróðleik að flytja. Er henni skift í
3 aðalkafla: I. Religionshistoriens betydning og religionshistorisk
metode í leologien. II. Litt religions-fenomenologi. III. Anvendt
religions-historie. — Alls 228 bls.
„Norsk teologisk Tidskrift", 4. h. 1932 og 1.—3. h. 1933. —
Oslo. Gröndahl & Söns Forlag.
Af greinum, sem þessi árgangur flytur, skal sérstaklega bent