Eimreiðin


Eimreiðin - 01.04.1931, Qupperneq 18

Eimreiðin - 01.04.1931, Qupperneq 18
122 VIÐ ÞJÓÐVEGINN eimreiðin samkomulagið gott milli Dana og Norðmanna ogTsland. fyr en Grænlandsmálið sé leyst á viðunandi hátt. Það hefur komið til orða að leggja málið undir úrskurð alþjóðadómstólsins í Haag, en sumir Norðmenn efast um, að Danir fáist til þess. Málið er mikið á dagskrá í Nor- egi. En hvað gerir Grænlandsnefndin íslenzka, eða er hún ekki einhversstaðar til? Grænland hefur verið nefnt nýlenda Islands. Það er því ekki úr vegi, að Islendingar fylgist með því, sem rætt er og ritað um landið meðal frændþjóða vorra. Þess vegna hefur verið skýrt nokkuð frá þessu máli hér. Ekkert er líklegra en að til breytinga dragi innan skams um stöðu Grænlands og framtíð. Norðmenn munu ekki láta sitja við orðin tóm, ef að líkindum lætur. Og Danir sjálfir eru farnir að ókyrrast, þrátt fyrir ummæli Staunings. Grænland er svo tengt Islandi sögulega, að Islendingar geta ekki setið hjá, þegar réttur norrænna þjóða til landsins er ræddur — og metinn. Um bækur. Þú getur verið ríkur án þess að eiga nokkuð. Margur fátæklingurinn er ríkari en sá, sem getur veitt sér jarðnesk gæði. Það skiftir mestu máli, hvernig vér kunnum að færa oss það í nyt, sem oss mælir. Bók er pappír, prentsverta og kápa. Til þess að hún verði annað og meira, verðurðu að hafa tileinkað þér efni hennar. Bókasafn, sem aldrei er notað, er eins og kölkuð gröf, og óhreyfðar bækur í löngum hilluröðum eru eins og líkkistur frægra feðra. Og þó hefur þeim pen- ingum aldrei verið eytt að óþörfu, sem farið hafa fyrir bækur. Þær eru eins og alabastursbuðkur konunnar. í þeim eru dýrmæt smyrsl, sem aldrei þrjóta, hve oft sem þú hefur þau um hönd. Innstæða í bókum ef höfuðstóll, sem aldrei rýrnar. J. Ramsay MacDonald. Trú og vísindi. Undirstaða allrar vísindastarfsemi er sannfæringiu um, að skipulag og samræmi ráði í allri tilverunni, en slík sannfæring er trúarlegs eðlis. Trúartilfinning mín er fólgin í lotningarfullri undrun yfir því skipulagi, sem opinberast í því litla broti veruleikans, sem hin daufa sjón vor mannanna fær skynjað. Albert Einstein.
Qupperneq 1
Qupperneq 2
Qupperneq 3
Qupperneq 4
Qupperneq 5
Qupperneq 6
Qupperneq 7
Qupperneq 8
Qupperneq 9
Qupperneq 10
Qupperneq 11
Qupperneq 12
Qupperneq 13
Qupperneq 14
Qupperneq 15
Qupperneq 16
Qupperneq 17
Qupperneq 18
Qupperneq 19
Qupperneq 20
Qupperneq 21
Qupperneq 22
Qupperneq 23
Qupperneq 24
Qupperneq 25
Qupperneq 26
Qupperneq 27
Qupperneq 28
Qupperneq 29
Qupperneq 30
Qupperneq 31
Qupperneq 32
Qupperneq 33
Qupperneq 34
Qupperneq 35
Qupperneq 36
Qupperneq 37
Qupperneq 38
Qupperneq 39
Qupperneq 40
Qupperneq 41
Qupperneq 42
Qupperneq 43
Qupperneq 44
Qupperneq 45
Qupperneq 46
Qupperneq 47
Qupperneq 48
Qupperneq 49
Qupperneq 50
Qupperneq 51
Qupperneq 52
Qupperneq 53
Qupperneq 54
Qupperneq 55
Qupperneq 56
Qupperneq 57
Qupperneq 58
Qupperneq 59
Qupperneq 60
Qupperneq 61
Qupperneq 62
Qupperneq 63
Qupperneq 64
Qupperneq 65
Qupperneq 66
Qupperneq 67
Qupperneq 68
Qupperneq 69
Qupperneq 70
Qupperneq 71
Qupperneq 72
Qupperneq 73
Qupperneq 74
Qupperneq 75
Qupperneq 76
Qupperneq 77
Qupperneq 78
Qupperneq 79
Qupperneq 80
Qupperneq 81
Qupperneq 82
Qupperneq 83
Qupperneq 84
Qupperneq 85
Qupperneq 86
Qupperneq 87
Qupperneq 88
Qupperneq 89
Qupperneq 90
Qupperneq 91
Qupperneq 92
Qupperneq 93
Qupperneq 94
Qupperneq 95
Qupperneq 96
Qupperneq 97
Qupperneq 98
Qupperneq 99
Qupperneq 100
Qupperneq 101
Qupperneq 102
Qupperneq 103
Qupperneq 104
Qupperneq 105
Qupperneq 106
Qupperneq 107
Qupperneq 108

x

Eimreiðin

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Eimreiðin
https://timarit.is/publication/229

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.