Eimreiðin - 01.04.1931, Blaðsíða 34
138
LISTSKOPUN 00 KENDAMORK
EIMREIÐIN
skynseminnar. Og vér höfum þegar sýnt fram á, að ómögu-
legt er að sjá nákvæmlega, hvar hin eðlilegu kendamörk
hætta, og hvar viljinn grípur inn í, til að stjórna þeim og
breyta.
Fjórða mótbára, sem leiðir af þeirri síðustu: Hendamörk
vor skapa ekkert verk, en listastarfsemin skapar verk, sem
stendur.
Hér virðist fljótt á litið, að fundið sé ótvírætt einkenni,
sem greini listina frá kendamörkum. En þegar betur er gætt
að, kemur í ljós, að öll listræn starfsemi þarf ekki að skapa
verk, sem standa. Einkennið á að eins við hinar æðri listir.
Að því er snertir svipbrigðalist, t. d., þá virðist mér, að hún
láti ekkert verk eftir sig, frekar en ósjálfráðar tilfinninga-
hreyfingar vorar. Danzmærin, sem sveigir hinn fagra líkama
sinn með töfrandi yndisþokka, gerir listrænar hreyfingar, en
starf hennar Iætur ekkert mark eftir sig, frekar en skipið,
sem klýfur hafflötinn. Annars myndar hver sérstakur danz
kerfi af hreyfingum, verk, sem þjóðvenjan varðveitir.
Lesandinn hefur nú séð, hversu efnið hefur eins og gengið
úr greipum vorum í hvert sinn, er vér höfum viljað skilja að
kendamörkin og listsköpunina, og sýna skýrt mismun á þeim.
Það er mikill munur á hárri og fullkominni list og tilfinninga-
hreyfingum, en þó höfum vér séð þennan mun smámsaman
hverfa, eftir því sem um lægri list er að ræða. Vér viljum
þó alls ekki halda fram, að list og kendamörk séu eitt og
hið sama, heldur hinu, að listin sé runnin frá tilfinningum
mannsins og standi ávalt í nánu sambandi við þær á allri
þróunarbraut sinni. Vaknar þá spurningin: Standa kendamörk
og list ekki að einhverju leyti í öfugu hlutfalli hvort við annað?
Mér virðist, að ein þjóðfélagsleg staðreynd færi líkur fyrir
þessari tilgátu. Það er staðreynd, að miklu færri konur leggja
fyrir sig list en karlmenn og eins hitt, að konur eru sjaldan
miklir listamenn. Hvers vegna? Til þess liggja sjálfsagt margar
orsakir, þjóðfélagslegar og sálrænar, að konur taka miklu
minni þátt í skapandi starfi. Konur sýna miklu meira kenda-
mörk en karlmenn. Þær láta tilfinningar sínar í ljós á sem
auðveldlegastan og eðlilegastan hátt. Hinar þyngstu sorgir geta
trauðlega komið út á oss karlmönnunum tárum, eftir að vér