Eimreiðin - 01.04.1931, Blaðsíða 54
158
DR. JEAN CHARCOT
eimreidin
örlítið sýnishorn, og var það geymt í glerhylki í náttúrugripa-
safninu í París. Vísindamönnum lék hugur á að ná í stærri
sýnishorn, bæði til þess að rannsaka þau og einnig til þess
að varðveita þau á söfnum. Margar tilraunir voru gerðar til
þess að ná þessu takmarki, en brimrótið er oftast nær svo
mikið í kringum Rockall, að það er ógerningur að komast
þar nálægt. — Prófessor Lacroix fór fram á það við frakk-
nesku stjórnina, að herskipin, sem færu til Islands á hverju
ári, reyndu að ná í einhver brot úr klettinum, en þeim tókst
það heldur ekki.1)
Árið 1915 bar svo við, að Lacroix hélt að hann hefði
fundið næstum sömu efnin og í Rockallite í sýnishorni af
kletti frá eyjunni Madagaskar. Þótti nú enn meiru skifta að
ná góðum sýnishornum frá Rockall. Charcot fékk sterkan
áhuga á að leysa þetta vandastarf af hendi, og af því, að
hann var sannfærður um, að „Pourquoi pas?“ væri einmitt
skipið, sem þyrfti í slíkan leiðangur, þá fór hann þess á leit
við flotamálaráðuneytið árið 1921, að það gæfi samþykki sitt
til þess, að hann gerði tilraunina og fór jafnframt fram á,
að ef hún heppnaðist ekki í fyrsta sinni, þá mætti hann reyna
aftur næsta ár. Að fengnu leyfi var „Pourquoi pas?“ útbúið
í þessa ferð og reynt að sjá við öllum hugsanlegum hættum.
En það er oft, að vogun vinnur, og um þessa för gat
Charcot sagt hið sama og Cæsar forðum: Veni, vidi, vici.
„Pourquoi pas?“ lagði af stað frá Cherbourg 19. júní, fór til
Stornoway til að taka vatn, en var komið á vettvang 29. s. m.
Skipið lagðist hér um bil 200 m. frá Rockall. Veðrið var gott,
dálítil gola og undiralda nokkur. En það var ekki brimið,
sem var það versta. Kletturinn er sæbrattur mjög og lííí
mögulegt að ná fótfestu utan í honum, enda hefur Charcot
oft sagt, að eftir á hafi hann ekki skilið, hvernig þetta gat
tekist svo fljótt og vel. Tveir skipverjar, er voru sérstaklega
liðugir, gáfu sig fram til að fara upp á klettinn, og fóru þeir
ásamt sjóliðsforingja, er átti að leiðbeina þeim, í görnlum
sterkum hvalveiðabát, en Charcot fór sjálfur í skipsbátnum>
1) Árið 1896 gerði „The Royal Irish Academy“ út skip í þessum
tilgangi, en árangurslaust.