Eimreiðin - 01.04.1931, Blaðsíða 20
124
LISTSKÖPUN OQ KENDAMÖRK
eimreiðin
tekningar, og eru þeir ef til vill enn þá færri en hinir, sem
sviftir eru allri siðferðiskend. Hin sama hneigð kemur frarn
hjá fátæku, fáfróðu síldarstúlkunni, sem prýðir herbergið sitt
með myndum úr sígarettupökkum, og frægum myndhöggvara,
sem skreytir veglegt stórhýsi. — Hér er því um almenna stað-
reynd, sálfræðilega og þjóðfræðilega að ræða, sem gefur til'
efni til vísindalegra tilrauna og skýringa. Durkheim kallaði
þetta fagurfræðilegar staðreyndir, faits esthétiques. — Hið fagra
hefur alt af verið aðalviðfangsefni mannlegrar hugsunar, ásamt
hinu góða og sanna.
Vildi ég í þessu greinarkorni athuga hina sérstöku þrá og
þörf mannsins til að skapa listaverk. En vegna þess, hve efnið
er umfangsmikið og hægt er að rannsaka það frá rnörgum
sjónarmiðum, þá vel ég að eins eitt af mörgum, og ræði um
listsköpun mannsins og samband hennar við tilfinningalíf hans.
I.
011 listastarfsemi er uppfundning; en öll uppfundning eða
skapandi starfsemi hugsunar vorrar er knúin fram af áhuga,
þrá, þörf, sem krefst fullnægingar. Með öðrum orðum, til-
finningarástand er að baki öllu skapandi starfi. Ef ég hefði
enga löngun eða þörf til að gera þetta eða hitt, þá gerði ég
það ekki. Tökum dæmi: Vélfræðingur nokkur sér ýmsa galla
á gufuvél, er knýr skip áfram. Honum kemur til hugar að
rannsaka nákvæmlega í hverju gallar þessir felist, ráða bót á
þeim, smíða aðra vél, sem yrði ódýrari í rekstri, fyrirferðar-
minni, endingarbetri o. s. frv. Hann beinir nú huga sínum
að þessu vísindalega verkefni, og gerum ráð fyrir, að honum
takist að endurbæta gufuvélina. — Það er auðsætt, að upp'
fundning þessi er um leið hagnýt. Hún er gagnleg og þjónar
vissum tilgangi — og vélfræðingurinn gleðst nú yfir uppfundn-
ingu sinni, er hann sér, að hún verður heiminum að gagni
og sjálfum honum til fjár og frama.
í öðru lagi fylgja tilfinningar allri skapandi starfsemi. Þegar
vélfræðingurinn, í dæminu sem vér tókum, vann að urnbótum
gufuvélarinnar, fann hann á hverju augnabliki til vissrar kendar.
Er hann sá, að hann var á góðri leið með að ráða fram úr
verkefninu, þá gladdist hann. Aftur á móti fann hann til gremju>