Eimreiðin


Eimreiðin - 01.04.1931, Side 58

Eimreiðin - 01.04.1931, Side 58
162 DR. JEAN CHARCOT eimreiðin lagði hann þeim lífsreglurnar og kendi þeim ráð til að verjast skyrbjúg. Þann 5. dag ágústmánaðar kom „Pourquoi pas?“ hingað til Reykjavíkur, og voru þá liðin 12 ár síðan dr. Charcot hafði verið hér. Dáðist hann mjög að framförunum hér og þeim stakkaskiptum, sem Reykjavík hafði tekið. Þessi fyrsta för Charcots til Grænlands varð einungis til þess að auka löngun hans til að kynnast landinu nánar og kanna betur hin stórmerku jarðlög við Scoresby-Sund (Hurry Inlet hefur verið nefnd Paradís jarðfræðinga). En úr þeim hafði hann haft með sér heim sýnishorn, sem l’Academie des Sciences þótti svo mikið til koma, að það óskaði eftir því, að hann færi þangað aftur til þess að sækja meira verkefni til rannsóknar. Hann lagði því aftur af stað næsta ár, en hrepti þá ilt veður og hitti fyrir mikinn hafís; lífsháskinn og erfið- leikarnir urðu þá svo miklir, að þegar dr. Charcot kom hingað til Reykjavíkur í heimleiðinni, sagðist hann aldrei oftar fara til Grænlands. — Þó hafði vísindalegi árangurinn orðið mikill, og „Pourquoi pas?“ var fyrsta skipið, sem heimsótti þessa nyrztu nýlendu heimsins, sem Danir með miklum tilkostnaði og fyrirhöfn höfðu komið á fót árinu áður, eins og þegar hefur verið minst á. En dr. Charcot átti eftir að sigla einu sinni enn innan um Grænlandsísinn. Það var þegar hann fór til þess að leita að þeim Amundsen, Guilbaud og förunautum þeirra. Eftir árang- urslausa leit kom hann hingað til Reykjavíkur 31. ágúst s. á. Arið 1929 kom hann hingað aftur, og allir vinir hans hér höfðu búist við honum hingað síðastliðið sumar á alþingis- hátíðina — en það fórst því miður fyrir. Starfsemi dr. Charcots er og hefur verið mjög margþætt, en þar eð heimsskautaferðir hans eru aðalþátturinn, og sá sem hefur borið hróður hans og Frakklands út um allan heim, þá kaus ég aðallega að minnast á þessa starfsemi hans. Hann er mikils metinn rithöfundur, hefur ritað þrjár stórar, fróð- legar og skemtilegar bækur um ferðalög sín, mikla bók uw Christopher Columbus og þar að auki ýmsar ritgerðir um vísindaleg efni (lífeðlisfræði, gerlafræði, landafræði, sjávar- rannsóknir og segulmagn jarðarinnar). Hann er félagi í ótal
Side 1
Side 2
Side 3
Side 4
Side 5
Side 6
Side 7
Side 8
Side 9
Side 10
Side 11
Side 12
Side 13
Side 14
Side 15
Side 16
Side 17
Side 18
Side 19
Side 20
Side 21
Side 22
Side 23
Side 24
Side 25
Side 26
Side 27
Side 28
Side 29
Side 30
Side 31
Side 32
Side 33
Side 34
Side 35
Side 36
Side 37
Side 38
Side 39
Side 40
Side 41
Side 42
Side 43
Side 44
Side 45
Side 46
Side 47
Side 48
Side 49
Side 50
Side 51
Side 52
Side 53
Side 54
Side 55
Side 56
Side 57
Side 58
Side 59
Side 60
Side 61
Side 62
Side 63
Side 64
Side 65
Side 66
Side 67
Side 68
Side 69
Side 70
Side 71
Side 72
Side 73
Side 74
Side 75
Side 76
Side 77
Side 78
Side 79
Side 80
Side 81
Side 82
Side 83
Side 84
Side 85
Side 86
Side 87
Side 88
Side 89
Side 90
Side 91
Side 92
Side 93
Side 94
Side 95
Side 96
Side 97
Side 98
Side 99
Side 100
Side 101
Side 102
Side 103
Side 104
Side 105
Side 106
Side 107
Side 108

x

Eimreiðin

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Eimreiðin
https://timarit.is/publication/229

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.