Eimreiðin - 01.01.1932, Side 38
26
BLÓÐRANNSÓKNIR
eimreiðin'
mun færri, ef maðurinn væri af B-flokki, enn færri, ef hann
væri af A-flokki, og ef við hefðum lent á manni úr AB-flokki,
myndum við ekki finna neina breytingu hjá neinum, ekki
frekar en vatni hefði verið blandað saman við blóðdropana,
sem við hefðum tekið úr fólkinu.
Ástæðan til þessa munar er flokkaskiftingin. Þegar nánar
er athugað, hvað þessu veldur, kemur í ljós, að það er tvenns
konar límni, tvö agglutinogen, sem standa á bak við þetfa
alt saman. Annað þeirra er það, sem við köllum A, hitt B-
Flokkaskiftingin fer eftir því, hvort menn hafa í blóði sínn
annað þeirra, hvorugt eða bæði. Sá, sem hvorugt hefur er
af 0-flokki, sá, sem bæði hefur, er af AB-flokki, sá, sem
hefur aðeins annað, af A eða B-flokki, eftir því, hvort þeirra
hann hefur.
En þetta var ekki nema önnur hliðin á málinu. Þetta uar
límnin, agglutinogen, en límið vantaði okkur ennþá, og Þe^a
lím, sem við köllum agglutinin, er líka tvenns konar. Svar
andi til límninnar (agglutinogensins) A er límið « og svaran
til límninnar (agglutinogensins) Ð er fi. « getur límt A og
getur límt B, en /? ekki A og a ekki B. Nú vitum við, 3
límnin er alt af bundin við það, sem á saman að límast, e
eins og við köllum það, agglutinerast, en það eru rauðu blo
kornin, en límið, agglutininið, er í serum. Af þessu sk>®
hvernig fara myndi, ef samsvarandi lím og límni væri í hl°
sama manns. Ef sami maður hefði t. d. bæði a og A, Pa
mundi blóðið hlaupa saman í æðum hans á skömmum h”13
og maðurinn liggja dauður á svipstundu. Þetta kemur heldu
aldrei fyrir, vegna þess að það er blátt áfram ekki ltf'nU
samrýmanlegt, en hitt er eftirtektarvert, að hver maður he u
einlægt lím á móti þeirri límni, sem hann hefur ekki sjál*u
f blóðinu. Ef ég finn t. d. límnina A í blóði einhvers, ðe
ég verið viss um, að hann hefur límið á móti B. Svona e
menn ramm-pólitiskir í blóðinu, þeir hljóta alt af að vera
móti því, sem þeir eru ekki nauðbeygðir til að vera með-
Út úr öllu þessu fáum við þá flokkaskiftinguna í 4 flokkana<
eins og eftirfarandi tafia sýnir: