Uppeldi og menntun - 01.09.1993, Side 47
FRIÐRIK H. JÓNSSON, ANNA HULD ÓSKARSDÓTTIR, HULDA GUÐMUNDSDÓTTIR
var lýst og þeir beðnir um leyfi fyrir þátttöku barna sinna. Upphaflegt úrtak voru 75
börn en foreldrar þriggja barna höfnuðu þátttöku. Viðtölin voru tekin í lok apríl og
byrjun maí 1992.
Efniviður
Notaðar voru sjö ljósmyndir af karlmönnum við störf. Til að auka samræmi í for-
sendum svara var börnunum sagt starfsheiti hvers manns. Tvær myndanna sýndu
hástéttarstörf, lækni og atvinnurekanda; þrjár millistéttarstörf, sjómann, kennara
og trésmið; og tvær lágstéttarstörf, verkamann og fiskverkamann. Einnig voru sex
ljósmyndir af húsnæði; fjölbýlishús í Asparfelli, átta íbúða fjölbýlishús í Grafarvogi,
gamalt parhús í Hlíðunum, nýtt parhús í Grafarvogi, gamalt einbýlishús í Réttar-
holtshverfinu og stórt einbýlishús á Arnarnesi. Loks voru sex ljósmyndir af bifreið-
um; Lada 1200, Skódi 120, Mitsubishi Galant, Toyota Corolla (skutbíll), Toyota
Hilux, Audi (fínasta gerð).
Myndefni í rannsóknina var valið þannig að 40 nemendur við Háskóla Islands
flokkuðu 29 starfsheiti í hástétt, miðstétt eða lágstétt. í rannsóknina voru notuð þau
sjö störf sem flestir voru sammála um hvernig bæri að flokka. Eiimig tilgreindu
háskólanemarnir hvers konar bifreið og hvers konar húsnæði fólk í viðkomandi
starfsgrein væri líklegast til að eiga og voru þær ábendingar notaðar við val á því
efni.
Loks var almenn þekking barnanna athuguð. Fyrst voru lagðar fyrir tíu spurn-
ingar almenns eðlis og síðan átta lokaðar og tíu opnar spurningar sem beiirdust að
þekkingu á atvinnumálum. Til dæmis var spurt „Hvað heitir hafið umhverfis Is-
land?", „Hver er forseti Islands?", „Hvað er orlof?" og „Geta allir fengið vinnu?"
Framkvæmd
Til að veiija börnin við efni rannsóknarinnar hófst viðtalið á spurningum um hvað
þau ætluðu að verða þegar þau yrðu fullorðin. Síðan komu almennu þekkingar-
spurningarnar. Hvert barn fékk svo að sjá ljósmynd af einum aðila úr lágstétt,
tveimur úr millistétt og einum úr hástétt. Lýstu þau störfunum og mátu hvort
viökomandi væri ríkur eða fátækur. Síðan völdu þau þann bíl og húsnæði sem þau
töldu líklegast að fólk í þeirri starfsgrein ætti.
Börnin voru einnig beðin um að tilnefna þann sem þau töldu ríkastan og fátæk-
astan af starfsstéttunum fjórum, hvaða bílar og húsnæði væru eftirsóknarverðust
og hvaða bílar og hús væru síst eftirsóknaverð. Viðtalinu lauk svo á átján spurning-
um um þekkingu á atvinnumálum.
Talað var við eitt barn í einu og tók hvert viðtal 20 til 40 mínútur. Svörin voru
merkt inn á þar til gerð eyðublöð. Viðtölin voru tekin á skólatíma barnanna.
Urvinnsla
Við úrvinnslu voru gefin stig fyrir svör og stigafjöldi milli aldurshópa borinn sam-
an. I almenna þekkingarprófinu var gefið eitt stig fyrir rétt svar og ekkert fyrir rangt
svar. Ef öll svörin voru röng fékk viðkomandi núll en tíu ef öll svörin voru rétt.
45