Uppeldi og menntun - 01.09.1993, Blaðsíða 113
HAFSTEINN KARLSSON
Ritutt t öðrum námsgreinum
Eðlilegt er að ritun í öðrum námsgreinum lúti sömu reglum og í móðurmáli. Nem-
endur þurfi að fara í gegnum ritunarferlið á sama hátt og sömu kröfur séu gerðar
um vandvirkni, málfar og stafsetningu. Ritun, t.d. í samfélagsfræði eða náttúru-
fræði, hjálpar nemendum að skilja og muna viðfangsefnið, auk þess sem skilningur
þeirra dýpkar. A miðstigi hef ég ævinlega nokkur ritunarverkefni í Islandssögu,
landafræði og náttúrufræði. Nemendur geta valið og mörg verkefnanna eru í þeim
dúr að þeir eiga að setja sig í spor t.d. persónu úr Islandssögunni, ferðamanns eða
jafnvel einhvers kvikindis sem deilir jörðinni með okkur mönnunum.
Námsmat
Kennarinn fylgist stöðugt með því sem nemendur eru að gera og kemur alltaf inn í
ferlið áður en verkinu er lokið. Hver nemandi geymir öll ritverk sín í möppu.
Kennarinn getur farið í möppuna hvenær sem er og skoðað hvort nemandi hafi
tekið framförum eða ekki. Við lokamat að vori skoðum við möppur nemenda ræki-
lega og metum framfarir nemenda. Við höfum líka próf í lestri og ritun. Með ritun-
arprófinu er ekki síður verið að leggja mat á ritunarferlið en endanlega útkomu.
Prófið tekur þrjár klukkustundir. I upphafi fá nemendur að velja á milli þriggja
verkefna. Þegar þeir hafa valið sér efni, setjast þeir saman sem völdu sama efni.
Hver hópur byrjar á þankahríð og örstuttum umræðum. Þetta tekur 5-10 mínútur.
Síðan fer hver í sitt sæti og skrifar drög. Klukkustundu síðar eru frímínútur. Að
þeim loknum hittast hóparnir aftur, nemendur lesa ritverk sín fyrir hina og fá
athugasemdir frá þeim, sem þeir skrifa á spássíuna. Að því loknu setjast þeir aftur í
sæti sín, leiðrétta stafsetningu með hjálp stafsetningarorðabóka eða bekkjarfélaga
og hreinrita svo verkið. Þeir skila öllum blöðunum. Þegar kennarinn fer yfir sér
hann hvernig verkið þróast frá punktum yfir í drög og að síðustu í fullbúið ritverk.
Mat hans byggist á því hvernig verkið þróast í gegnum ferlið, en að sjálfsögðu
skiptir endanleg útkoma máli og þættir eins og frágangur, skrift, stafsetning og
málfar.
Að tala og hlusta
Lestur og ritun eru grunnþættir í kennslu móðurmálsins. Einnig þarf að þjálfa nem-
endur í að tala og hlusta. Það er gert með ýmsu móti í skólum, s.s. með upplestri,
ræðumennsku og leikritaflutningi. Ég ætla að nefna hér tvö atriði sem ég tel einnig
afar mikilvæg í þessum efnum.
Samræður
Samræður um ákveðin viðfangsefni eru ágætar, t.d. í undirbúningi ritunar. Þær má
líka nota eftir að saga hefur verið lesin. Nemendur geta rætt um atburði í sögunni
eða hugmyndir sem þar koma fram. Samræðurnar dýpka þannig skilninginn á sög-
unni og nemendur læra að nota þær til að auka þekkingu sína og skilja betur það
sem um er rætt. Þeir læra líka að hlusta á aðra og segja hugsun sína. Nýlega kom út
námsefni í heimspeki fyrir börn. Það eru sögurnar Uppgötvun Ara eftir Matthew
111