Uppeldi og menntun - 01.09.1993, Blaðsíða 108
MÓÐURMÁLSKENNSLA í VILLINGAHOLTSSKÓLA
Hluti af þróunarverkefninu var að efla lesskilning nemenda á markvissan hátt.
Fyrst og fremst með auknum lestri en einnig með sérstökum verkefnum og aðferð-
um sem auðvelda þeim að skilja texta. Þær einkennast helst af því að nemendur
spyrja sig spurninga fyrir lestur, um leið og þeir lesa og eftir lestur. Lesskilnings-
kennslan fer fram í öllum lesgreinum.
Hér á eftir nefni ég nokkrar aðferðir3 sem hafa reynst okkur vel. Ég vil þó ítreka
að lesskilningur vex með auknum lestri og því er mikilvægt að fá nemendur til að
lesa meira en þeir gera.
Grunnhugmyndir sögu
Þessi aðferð er aðeins ætluð nemendum að tíu ára aldri. Unnið er út frá grunn-
hugmyndum sögunnar sem til umfjöllunar er. Sem dæmi má taka söguna um mús-
ina og ljónið.4 Þar er t.d. ein grunnhugmyndin að allir eigi að vera góðir við alla.
Aður en sagan er lesin fyrir nemendur er rætt um þessa grunnhugmynd út frá
reynslu þeirra. Kennari segir t.d.: „Við höfum öll lent í því að vera vond við aðra og
við höfum líka öll verið góð við aðra. Hvort fannst ykkur betra? Hvernig líður
okkur þegar einhver er góður við okkur? En vondur?" Eftir þessar umræður
beinum við sjónum okkar að sögunni. T.d.: „I sögunni ætlar ljónið að éta músina en
hættir við það og leyfir henni að fara. Getur músin launað ljóninu einhvern veg-
inn?" Eftir að hafa rætt aðrar grunnhugmyndir sögunnar á þennan hátt, er sagan
lesin. Að lestrinum loknum eru vangavelturnar, sem komu fram í umræðunum á
undan, tengdar því sem gerðist í sögunni og rætt um grunnhugmyndirnar. Þessi
aðferð krefst nokkurs undirbúnings kennara, en hann er þess virði. Umræður nem-
enda verða oft skemmtilegar og frjóar, ekki síst vegna þess að reynsla þeirra er
tengd efni sögunnar. Þeir finna að þeir hafa átt við svipuð vandamál að stríða og
söguhetjurnar og geta sett sig í þeirra spor.
Sögur með eyðum
Kennarinn tekur stutta sögu eða sögubrot og þurrkar burt nokkur mikilvæg orð.
Nemendur eiga síðan að setja í eyðurnar orð sem passa. Yfirleitt þurfa þeir að lesa
allan textann áður en þeir geta fyllt í eyðurnar. Svona verkefni má leggja fyrir nem-
endur á öllum aldri, því það er hægt að hafa þau mismunandi erfið. Oft má setja
fleiri en eitt orð í eyðurnar og ósjaldan skapast skemmtilegar umræður um hvaða
orð er best að nota. Líka má þurrka út hluta af setningu, heila setningu eða nokkrar
málsgreinar. Nemendur lesa söguna og ræða hvaða nauðsynlegar upplýsingar
vantar.
Að flækja nemendur intt í atburðarás
Kennari les sögu fyrir nemendur, en rýfur lestur á fyrirfram ákveðnum stöðum og
spyr spurninga. Fyrsta spurningin kæmi strax á eftir titli sögunnar: „Um hvað
3 Fjórar fyrstu eru ættaðar úr bókinni Rcading and Leaming lo Rcad eftir Vacca, Vacca og Gove, bls. 142-171.
4 Úr dæmisögum Esóps.
106