Uppeldi og menntun - 01.09.1993, Blaðsíða 18

Uppeldi og menntun - 01.09.1993, Blaðsíða 18
FRÁ KRISTINSDÓMSLESTRI TIL MÓÐURMÁLS LESBÓKIN - LYKILL AÐ ÞJÓÐARSÁLINNI Áhugamenn um alþýðufræðslu höfðu lengi með litlum árangri kallað eftir „barna- vini" íslenskum börnum til fróðleiks og uppbyggingar (Loftur Guttormsson 1990:173). Upplýsingaröld hafði fært þeim í hendur Kvöldvökurnar 1794 og Sumar- gjöf handa börnum (1796), með sínum dæmigerðu siðferðilegu áherslum (Helga G. Gunnarsdóttir 1990:227-228; Loftur Guttormsson 1983:201-202). Af náskyldum toga voru ]ólagjöf{1839) og Nýársgjöf (1841) sem Jóhann Halldórsson sá um útgáfu á; en hvorttveggja var að bækur Jóhanns geymdu aðallega frásagnir af erlendum toga, meira og minna staðfærðar (Silja Aðalsteinsdóttir 1981:49-53), og þær fólu aðeins í sér tilboð sem engin skylda bauð börnum að notfæra sér.10 Kringum 1870 sat enn við það að barnalærdómsbókin var eina skyldulesefni barna. Það er táknrænt fyrir þessar aðstæður að Benedikt Gröndal sá það helst til úrbóta að smeygja veraldlegri fræðslu inn í barnalærdómsbókina þannig að hún innihéldi, auk guðlegra fræða, „en [= hinj allrahelztu atriði almennrar menntunar ..." (Benedikt Gröndal 1870:58). Sú varð þó ekki lausnin; en kröfu Benedikts var svarað skömmu síðar í annarri mynd með því að árið 1874 kom út Lestrarbók handa alpýðu á íslandi eftir sr. Þórarin Böðvarsson í Görðum. Tildrögum að samingu hennar lýsir höfundur svo í formála (Þórarinn Böðvarsson 1874:111): ... jeg varð þess áskynja, að allir þeir almúgamenn á Islandi, er kunnu danska tungu og höfðu lesið „P. Hjorts Danske Börneven" höfðu miklar mætur á þeirri bók; fóru nokkrir þess á leit við mig, að ég sneri henni á íslenzku. Höfundur kveðst þó ekki hafa viljað láta sitja við einskæra þýðingu á dönsku bókinni ... með því tnargt íhenni er einkennilegt fyrir Dani og getur ekki átt við hjá oss. Að hinu leytinu varð ég að álíta það mjög æskilegt, að almúgamenn á íslandi hefðu líka bók, þar sem ágrip væriafalmennum fræðum,og það pvífremursem hjer cr skortur á slíkum bókum, og engir alþýðuskólar, en íslendingar að hinu leytinu flestum þjóðum leiknari íað kenna sjer sjálfir. Af þessum sökum tók sr. Þórarinn það ráð að staðfæra þýðinguna og endursemja heilu kaflana; hann hélt efnisskipan fyrirmyndarinnar í megindráttum, breytti ein- stökum efnisþáttum mismikið, sleppti sumum en jók öðrum við. Aðalkaflar eru fimm, hver með nokkrum undirköflum. Hinn fyrsti geymir bókmenntaefni, bæði skáldskap, dæmisögur og ævintýri, sem og uppbyggilegar frásögur. Annar kafli fjallar um landafræði og náttúrufræði, hinn þriðji birtir lýsingu jarðar og rekur þætti úr mannkynssögu, sá fjórði fjallar um Island, landafræði þess, sögu og þjóð- félagsskipan. Sá fimmti og síðasti fjallar um líkamlega heilbrigði, kristna trú og kirkju. I heild telur bókin 423 þéttprentaðar blaðsíður með mörgum teikningum og uppdráttum. Að efni og gerð speglar hún ósvikið upplýsingarmarkmið, þ.e. „safna á einn stað hinu helzta er þykir hæfa að vita" (Þórarinn Böðvarsson 1874:111). 1(1 í þessum flokki mætti nefna til viðbótar Smásögur sem Pétur Pétursson biskup safnaði og þýddi (Rv. 1859) og Nýja sumargjöf sem Páll Sveinsson gaf út í Kaupmannahöfn á árunum 1859-1865 (fjórir árgangar). 16
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72
Blaðsíða 73
Blaðsíða 74
Blaðsíða 75
Blaðsíða 76
Blaðsíða 77
Blaðsíða 78
Blaðsíða 79
Blaðsíða 80
Blaðsíða 81
Blaðsíða 82
Blaðsíða 83
Blaðsíða 84
Blaðsíða 85
Blaðsíða 86
Blaðsíða 87
Blaðsíða 88
Blaðsíða 89
Blaðsíða 90
Blaðsíða 91
Blaðsíða 92
Blaðsíða 93
Blaðsíða 94
Blaðsíða 95
Blaðsíða 96
Blaðsíða 97
Blaðsíða 98
Blaðsíða 99
Blaðsíða 100
Blaðsíða 101
Blaðsíða 102
Blaðsíða 103
Blaðsíða 104
Blaðsíða 105
Blaðsíða 106
Blaðsíða 107
Blaðsíða 108
Blaðsíða 109
Blaðsíða 110
Blaðsíða 111
Blaðsíða 112
Blaðsíða 113
Blaðsíða 114
Blaðsíða 115
Blaðsíða 116
Blaðsíða 117
Blaðsíða 118
Blaðsíða 119
Blaðsíða 120
Blaðsíða 121
Blaðsíða 122
Blaðsíða 123
Blaðsíða 124
Blaðsíða 125
Blaðsíða 126
Blaðsíða 127
Blaðsíða 128
Blaðsíða 129
Blaðsíða 130
Blaðsíða 131
Blaðsíða 132
Blaðsíða 133
Blaðsíða 134
Blaðsíða 135
Blaðsíða 136
Blaðsíða 137
Blaðsíða 138
Blaðsíða 139
Blaðsíða 140
Blaðsíða 141
Blaðsíða 142
Blaðsíða 143
Blaðsíða 144
Blaðsíða 145
Blaðsíða 146
Blaðsíða 147
Blaðsíða 148
Blaðsíða 149
Blaðsíða 150
Blaðsíða 151
Blaðsíða 152
Blaðsíða 153
Blaðsíða 154
Blaðsíða 155
Blaðsíða 156
Blaðsíða 157
Blaðsíða 158
Blaðsíða 159
Blaðsíða 160
Blaðsíða 161
Blaðsíða 162
Blaðsíða 163
Blaðsíða 164

x

Uppeldi og menntun

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Uppeldi og menntun
https://timarit.is/publication/581

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.