Iðunn : nýr flokkur - 01.10.1934, Blaðsíða 4
290
Dauðinn í mjólk.
IÐUNN
ingarefni mjólkurinnar spillist við gerilsneyðinguna, er bláber
hégómi í því sambandi.
Ætti að vera vandalaust að draga rökrétta ályktun a! fram-
greindum forsendum.
Sótthætta sú af ógerilsneyddri mjólk, sem um ræðir í ritgerð
þeirri, er hér fer á eftir — og ein nægir til þess, að dómi Dr.
de Kruif og fróðustu heimildarmanna hans, að krefjast beri
gerilsneyðingar allrar almennrar sölumjólkur — er ekki nema
eitt atriði af mörgum í þessu sambandi og engan veginn hið
þýðingarmesta. Rétt er og að geta þess, að ekki er kunnugt um
kálfsburðarsótt í kúm af völdum Bangssýkils hér á landi, og
öldusótt í mönnum er sömuleiðis óþekt — en raunar ekki
óþektari hér en í Ameríku og Evrópu, utan Miðjarðarhafsland-
anna, þangað til fyrir örfáum árum síðan. Komið hefir fyrir,
að dýralæknar vorir hafa grunað kýr um að vera smitaðar
Bangssýklum, þó að þeim hafi ekki tekist að færa sönnur á
það, og faraldur kvað vera hér af því, að ær láti lömbum
fyrir tíma, án þess að vitað sé, hvað valda muni. Um fólkið
er það að segja, að mikið er hér um hitasóttir, sem enginn
kann að rekja orsakir til, að ógleymdu ýmiskonar volæði, kröm
og kvölum, sem við læknarnir erum að vísu fljótir að nafn-
greina, en vitum stundum minna um en við látum í veðri vaka
og erum lengi að lækna. Og ekki er hér, fremur en annars stað-
ar, alt berklaveiki, sem berklaveiki er kallað, og ill veiki þó.
Vissulega er þetta alt rannsóknarefni, enda verður vafalaust
rannsakað á næstunni. En þó að hér reynist nú engin kálfs-
burðarsótt í kúm né öldusótt i mönnum, hvað ætti að hlífa
því, að hvorttveggja dynji yfir áður en við er litið? Ekki svo
að skilja, að slikt skifti verulegu máli, frá eða til, þegar um
það er að ræða, hvort hér eigi, eða eigi ekki, að gerilsneyða
almenna sölumjólk. Þar kallar alt á gerilsneyðingu: Hættan
á, að með mjólkinni berist og útbreiðist berklaveiki, taugaveiki,
taugaveikisbróðir, skarlatssótt, barnaveiki, önnur illkynjuð háls-
bólga, blóðeitrun, gigtsótt, blóðsótt, iðrakvef, jafnvel mænusótt
og margt annað vel þekt, miður þekt og — óþekt, sem meðal
annars má læra af eftirfarandi ritgerð, að komið getur upi>
úr kafinu, þegar minst vonum varir.
Af ritgerð Dr. de Kruif má margt annað læra en um nauð-
syn gerilsneyðingar mjólkur, og gefst öllum nokkuð — leik-