Iðunn : nýr flokkur - 01.10.1934, Blaðsíða 30
316 Dauðinn i mjólk. iÐUNPí."
mannlegt, að menn neituðu að tn'ia þvi. Og nú suð-
uðu röksemdirnar fyrir eyrunum á Carpenter. Aðeins
geitasóttkveikjur gátu sýkt menn, var sagt. En ekki
einn einn einasti af sjúklingunum hafði komið nálægt
geit, hvað þá drukkið geitamjólk. En þá var Theó-
bald Smith dreginn inn í deiluna, hinn merkasti allra;
gerlaleitarmanna Ameríku, og hann hafði athugað mál-
ið og látið í ljós það álit, að ef einhver BangssýkilL
gæti sýkt menn, hlyti það að vera sá sýkill, sem olli
burðarsótt í svínum, en ekki kúasýkillinn.
Það verður að segjast Carpenter til afsökunar, að'
það var ekki af ósæmilegri lítilsvirðingu á hinum
mikla manni, Smith, að hann lét ekki málið á sig
ganga, en hélt áfram sínu striki. Carpenter var aðeins
svo sjálfstæður í hugsun, svo þyrstur í staðreyndir
og svo sauðþrár, að hann gat ekki komið áliti Smiths
heim og saman við það, að enginn einasti af sjúkl-
ingunum í Ithaca hafði haft hið minsta saman við'
svín að sælda. Svínin í nágrenninu létu alls ekki grís-
unum. Sjúklingarnir höfðu ekki fengist við slátrun
svína. Þeir voru ekki svínahirðar né svínabændur,,
heldur stúdentar, húsmæður, sumir þeirra jafnvel há-
skólakennarar — sem samkvæmt embætti sínu urðu
að teljast standa svínum allfjarri.
Og þeir höfðu allir drukkið ógerilsneydda mjólk úr
smituðum kúm.
Nú spýtti Carpenter blóði úr fimm sjúklingum íi
kálffullar kýr, sem aldrei höfðu fengið aðkenningu af
kálfsburðarsótt Bangs — og þær létu allar með tölu
kálfunum þegar í stað. Aðeins einn kálfurinn kom lif-
andi. Carpenter hélt þannig áfram að svara röksemd-
um með tilraunum. Það voru seinvirk, en rækileg og;