Iðunn : nýr flokkur - 01.10.1934, Blaðsíða 89
IÐUNN
Bækur.
Jónas Jónasson: íslenzklr þjóðhœttir.
Einar Ól. Sveinsson bjó undir prentun. Útg. Ísa-
foldarprentsmiðia h.f. Reykjavík — 1934. Bls.
XXIV+504.
I.
Hér kemur Ioks langþráð bók fyrir almennings sjónir, og
má um hana segja líkt og Worse kapteinn sagði um sig og
skip sitt: »Við komum seint, herra konsúll, en við komum vel«.
Mörgum var jjað kunnugt, að sr. Jónas hafði þetta rit í
smiðum á seinni árum æfi sinnar; og þeir, sem þektu hann,
gátu ekki efast um, að það yrði merkilegt rit, ef honum ent-
ist aldur að lúka því. Svo varð því miður ekki; en góðir
menn hafa upp vakist til að leggja síðustu hendur á þetta
merka verk og koma því á sómasamlegan hátt fyrir ahnenn-
ings sjónir. Greinargerð Einars Ól. Sveinssonar fyrir handriti
höfundarins og meðferð sinni á þvi sýnir, að útgáfan hefir
hvorki verið auðvelt né fljótlegt verk; má heita, að hann hafi
sumstaðar orðið að semja hina síðustu gerð úr efniviði höf-
undar einum. Er slíkt gert af ræktarsemi mikilli við hinn liðna
höfund, og sömu hlýju til höfundarins kennir i hinum ítarlega
formála Einars, þar sem hann lýsir sr. Jónasi og segir sögu
hans og ritstarfa hans.
Yfirleitt ber þetta verk Einars eigi að eins vott um hina
vel kunnu nákvæmni hans og samvizkusömu fræðimensku,
heldur einnig hinn stálslegna dugnað hans, þegar útgáfur
hans á Laxdælu og Eyrbyggju eru teknar með i reikninginn.
Rangt væri að minnast ekki á útgefandann, ísafoldarprent-
smiðju, eða forstjóra hennar, Gunnar Einarsson. Honum bera
efalaust þakkirnar fyrir að hafa hrundið fyrirtækinu af stað
og fyrir hinn prýðilega ytri frágang á bókinni Hefir hann
látið gera fyrir hana margar myndir af nýju, og auk þess
notað fjölda eldri mynda, einkum úr hinum merku rituin
Daníels Bruun. Pappír, prentun og band er alt af beztu teg-
und og til mikils sóma fyrir prentsmiðjuna.