Iðunn : nýr flokkur - 01.10.1934, Side 89

Iðunn : nýr flokkur - 01.10.1934, Side 89
IÐUNN Bækur. Jónas Jónasson: íslenzklr þjóðhœttir. Einar Ól. Sveinsson bjó undir prentun. Útg. Ísa- foldarprentsmiðia h.f. Reykjavík — 1934. Bls. XXIV+504. I. Hér kemur Ioks langþráð bók fyrir almennings sjónir, og má um hana segja líkt og Worse kapteinn sagði um sig og skip sitt: »Við komum seint, herra konsúll, en við komum vel«. Mörgum var jjað kunnugt, að sr. Jónas hafði þetta rit í smiðum á seinni árum æfi sinnar; og þeir, sem þektu hann, gátu ekki efast um, að það yrði merkilegt rit, ef honum ent- ist aldur að lúka því. Svo varð því miður ekki; en góðir menn hafa upp vakist til að leggja síðustu hendur á þetta merka verk og koma því á sómasamlegan hátt fyrir ahnenn- ings sjónir. Greinargerð Einars Ól. Sveinssonar fyrir handriti höfundarins og meðferð sinni á þvi sýnir, að útgáfan hefir hvorki verið auðvelt né fljótlegt verk; má heita, að hann hafi sumstaðar orðið að semja hina síðustu gerð úr efniviði höf- undar einum. Er slíkt gert af ræktarsemi mikilli við hinn liðna höfund, og sömu hlýju til höfundarins kennir i hinum ítarlega formála Einars, þar sem hann lýsir sr. Jónasi og segir sögu hans og ritstarfa hans. Yfirleitt ber þetta verk Einars eigi að eins vott um hina vel kunnu nákvæmni hans og samvizkusömu fræðimensku, heldur einnig hinn stálslegna dugnað hans, þegar útgáfur hans á Laxdælu og Eyrbyggju eru teknar með i reikninginn. Rangt væri að minnast ekki á útgefandann, ísafoldarprent- smiðju, eða forstjóra hennar, Gunnar Einarsson. Honum bera efalaust þakkirnar fyrir að hafa hrundið fyrirtækinu af stað og fyrir hinn prýðilega ytri frágang á bókinni Hefir hann látið gera fyrir hana margar myndir af nýju, og auk þess notað fjölda eldri mynda, einkum úr hinum merku rituin Daníels Bruun. Pappír, prentun og band er alt af beztu teg- und og til mikils sóma fyrir prentsmiðjuna.

x

Iðunn : nýr flokkur

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Iðunn : nýr flokkur
https://timarit.is/publication/442

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.