Iðunn : nýr flokkur - 01.10.1934, Blaðsíða 94
380
Bækur.
IÐUNN
ist 10. hefti Grlmu, þjóðsagnasafns, er Þorst. M. hefir gefið
iút undanfarið, en Iðunn ekki séð nema sumt af því.
Tvö þjóðsagnasöfn önnur hafa borist, bæði frá Bókaverzl.
Guðm. Gamalielssonar. Annað er Vestfizkarsagnir, er
Helgi Guðmundsson safnar. Eru komin af þvi þrjú hefti, og
virðist það ætla að verða stórt safn og eigulegt. Hitt er Osc-
ar Clausen: Sögur af Snœfellsnesi, I, mjög læsilegt safn, sem
vafalaust heldur áfram.
ísafoldarprentsmiðja hefir gefið út heildarsafn af Ljóðu m
Guðni. G uð mundsso nar i þrern bindum, og er sú útgáfa
hin vandaðasta. Grétar Fells hefir séð um útgáfuna og ritað
stuttan formála. Af öðrum ljóðabókum má nefna Stein Steinar:
RauOur loginn brann. Er það fyrsta bók höf. og mjög
svo athyglisverð. Minni eftirtekt vekja Nokkur IjóOmœli
eftir Björgvin Halldórsson, kornungan mann, nýlega látinn,
og Glœður I, eftir Gunnar S. Hafdal.
Af sögum er rétt að nefna fyrst tvær góðar þýðingar, aðra
af skáldsögu Hans Fallada: HvaO nú — ungi maður?
■er Magnús Asgeirsson hefir þýtt, en Alþýðuprentsmiðjan gaf
út, og liina af Sögum eftir Maxim Gorki. Fyrri bókin mun
geta sér vinsældir hér sem annars staðar, en hin á engu síð-
ur skilið að verða keypt og lesin. Sögur Gorkis eru hver ann-
ari betri, og þýðingin virðist hafa tekist mæta vel, en þýðand-
inn er Jón Pálsson frá Hlíð. — Þá eru Tindar, eftir Þorstein
Jósefsson, nokkuð æfintýrakendar smásögur, sem Olafur Er-
lingsson gefur út. Svo er Þórunn Magnúsdóttir: Dœtur
Reg kjavíkur, II. Vorið hlœr. Þetta er saga úr Reykja-
víkurlífinu, og þó að eins fyrri hluti, skrifuð i dagbókarformi.
Áður mun hafa komið Dœtur Reg kjavikur I, en þá bók
hefir Iðunn ekki fengið. Þá hefir Axel Thorsteinson gefið út
tvær smásögur: D okaO við í H rau nahrepp i og H an ni-
bal og Dúna. Loks heldur Gunnur M. Magnúss áfram að
segja frá strákunum frá Viðigerði i Viö skulum halda á
skaga, sem er engu síður skemtileg og spanandi en fyrrí
bókin og allir strákar lesa með áfergju.
Af nokkuð öðru tagi er Gg 0 ingurinn gangandi, eftir
Guðbrand Jónsson (sent frá Herbertsprent). Eru það 10 út-
varpserindi, sem höf. hefir flutt, um hin sundurleitustu efni. —
Friðrik Á. Brekkan hefir skrifað bók, er hann nefnir Alþjjð-
leg sjálfsfrœðsla, en Stórstúka íslands gefur út. Ræðir
hún um sjálfsmentun alþýðu og starfsemi fræðsluhringa, er
höf. vill koma á fót hér á landi, að sænskri fyrirmynd. Þetta
-er litil bók, en greinagóð og um mikilvægt efni.