Iðunn : nýr flokkur - 01.10.1934, Blaðsíða 33
IÐUNN
Dauðinn í mjólk.
319'
smitað. Svínasmitunin var það moldryk, sem þyrlað
var upp, og með því reyndu skuggapiltarnir að bjarga
við málinu. Og það var þeim giftudrýgst, að fólk,.
sem hafði sýkst, án þess að koma nálægt svínunv
en hinsvegar af því einu að drekka ógerilsneydda
mjólk, það var alt óþekt fólk og lítils megandi.
Þá kom fyrir sá sorglegi atburður i South Bend í
Indiana, að frægur skurðlæknir, sem veikst hafði
haustið 1927, hafði höfuðverk, bæði í enninu og hnakk-
anum, gat hvorki etið né sofið, en bylti sér eirðar-
laus allar nætur með einkennilegri angistartilfinningu
— batnaði og fór á fætur, tók til að skera fólk á
ný, en varð enn veikur og lagðist í rúmið. Hann var
svo mikils háttar maður, að fremstu menn lyflæknis-
deildar háskólasjúkrahússins tóku hann til rækilegrar
rannsóknar.
Samtimis voru þrettán sjúklingar aðrir í South
Bend, sem leið nákvæmlega eins. Á sjúkdóm þeirra
höfðu Iæknarnir slett ýmsum nöfnum, þar á meðal
syfilis, gallsteinum, gigt, taugaveiki og berklaveiki,
Með sjúklingana var farið í samræmi við sjúkdóms-
greiningu hvers eins — án árangurs, sem var leitt
fyrir þá. En hvað átti að gera við hinn fræga skurð-
lækni!
Fremstu vísindamenn læknadeildar háskólans héldiu
ráðstefnu við sjúkrabeð hans, báru saman bækurnar,
reyndu alt; þeir breiddu úr öllum vísindum sínum
fyrir hann. Og þeir enduðu á þvi að rannsaka, hvort
hann gæti verið smitaður Bangssýklum.
Og svörunin varð jákvæð. Hann hafði drukkið
»ógrynni af ógerilsneyddri mjólk og rjóma frá kúa-
búi, sem í voru tuttugu og ein kýr«, en þegar rann-
sakað var, reyndust þrjár þeirra smitaðar Bangssýkl-