Iðunn : nýr flokkur - 01.10.1934, Blaðsíða 19
ÍÐUNN
Dauðinn í mjólk.
305
6.
Auðvitað var hægt að túlka staðreyndirnar þannig,
að rökin virtust vera á móti henni. Ef gerlarnir voru
tviburar, því geisaði þá Maltasóttin ekki i Ameriku?
Miljónir Ameríkumanna drukku ógerilsneydda mjólk
úr smituðum kúm. Læknar vorir eru hinir árvökrustu
læknar í heimi með nýtízku hugsunarhátt og starfs-
aðferðir, og hvernig gat það þá átt sér stað, að ekki
einn einasti þeirra hafðl rekist á nokkurt mannsbarn
smitað Bangssýklum? í Minnesota hafði það að visu
komið fyrir, að læknar tveir, Larson og Sedge-
wick, höfðu fengið jákvæða svörun við Bangssýklum
i blóði kvenna, sem hafði leystst höfn — og einnig
i blóði barna, sem höfðu drukkið ógerilsneydda mjólk,
sem smituð hafði verið hinum hættulegu sýklum. En
þeim hafði ekki tekist að finna sjálfan sýkilinn, hvorki
i konunum né börnunum — og þá var strompurinn
búinn.
Alice Evans var ekki læknir og ekki einu sinni stú-
dent, hún var aðeins ungfrú Evans, svo að það var
ekkert undarlegt, þó að hógværum umsóknum henn-
ar væri visað frá. Engin af vorum dýru stofnunum,
sem þéttskipaðar er æðri stéttar gerlaleitarmönnum og
búnar öllum þeim tækjum og tækni, sem heimurinn
á völ á: frá flóknustu mælitækjum fyrir hjartarann-
sóknir niður i haglega smíðaðar tengur til að kippa
með flísum út úr tánum á litlum drengjum — engin
þeirra hafði nokkru sinni náð í eitt einasta tilfelli af
Maltasótt, er sýkill Bangs hafði valdið. Er að undra,
að þetta setti nokkurn hemil á ungfrú Evans? Hún
hugsaði líka ráð sitt — í fjögur ár.
Hún tók að efast um sínar eigin staðreyndir. Hún
rannsakaði mjólk úr smituðum kúm til að komast að
Iðunn XVIII 20