Iðunn : nýr flokkur - 01.10.1934, Blaðsíða 51
IÐUNN
Með strandmenn til Reykjavíkur.
337
Þá var frostharkan svo mikil, að isstönglarnir héngu
niður úr nösunum á hestunum. Urðu þeir að krækja
Ianga leið út með syðri Rangá til þess að komast
yfir hana á haldi. Frá Ægissíðu ferðuðust þeir næsta
dag að Steinmóðabæ undir Eyjafjöllum og bæjunum
þar í kring. Þá var stilt veður og frost. Þaðan fóru
þeir að Drangshlíð undir Eyjafjöllum í bærilegu veðri.
Frá Drangshlíð héldu þeir að Vík i Mýrdal og voru
þar nætursakir. Þaðan náðu þeir að Söndum i Meðal-
landi. Sá bær stendur á vestri bakka Kúðafljóts. Komu
þeir við í Þykkvabæjarklaustri. Þar hittu þeir Hjör-
leif Jónsson, bónda í Sandseli, sem er á austurbakka
fljótsins. Varð hann þeim samferða austur og mun
hafa ætlað að leiðbeina þeim yfir Gvendarála, sem
eru kvíslar úr Kúðafljóti og falla fyrir vestan Sanda.
Þennan dag voru útsynningshryðjur, og gekk ferða-
mönnunum illa að komast yfir álana.
Þá átti heima á Söndum unglingsmaður, Eggert að
nafni Guðmundsson, Ijósmyndari. Var hann þar á
vist með móður sinni, Guðrúnu Magnúsdóttur, er þá
var orðin ekkja og bjó með Lofti, syni sínum.
Þegar tekið er að rökkva um kvöldið, sér Eggert
til ferða Öræfinganna vestan við Gvendarála. Þykist
hann sjá, að þeim gangi illa að komast yfir álana,
enda fór þá myrkur í hönd. Fær Eggert með sér
Klemens Jónsson umgangskennara, sem þá var stadd-
ur á Söndum, til þess að ríða til móts við ferða-
mennina og hjálpa þeim yfir álana. Tókst það slysa-
laust, þó að vötnin mættu heita illfær, því að dag-
ana áður höfðu verið leysingar með miklum vatna-
gangi. Komu þeir heim að Söndum nokkru fyrir dag-
setur og gistu þar allir um nóttina.
Næsta dag, hinn 17. febrúar, var loft heiðríkt fram
Iöunn XVIII 22