Iðunn : nýr flokkur - 01.10.1934, Blaðsíða 31
’IÐUNN
Dauðinn i mjólk.
317
bölvans neyðarleg svör til að greiða andstæðingum,
sem aðeins skröfuðu og rökræddu.
En vist virtist þetta nærri vonlaust, að ungfrú Ev-
ans og ungur dýralæknir, Carpenter að nafni, ein síns
liðs, reyndu að þröngva upp á hundruð þúsunda ame-
ríkanskra lækna, sem enn höfðu engan áhuga á mál-
inu, þekkingu sinni á sjúkdómi, sem vafalaust lét nú
allmjög til sín taka — og fá hann viðurkendan af
iðnaði, er hafði billjónir dollara í veltunni og var alt
annað en hrifinn af þessari rekistefnu . . .
Þá barst hjálp þvert yfir Atlantshafið, frá deildar-
stjóra við Blóðvessastofnunina i Kaupmannahöfn, Dr.
med. Martin Kristensen. Hann hafði tekið sér fyrir
hendur að rannsaka á stofnuninni blóðsýnishorn, sem
bárust úr öllum landshlutum og voru úr fólki, sem
var talið hafa taugaveiki. — Kristensen rannsakaði
nú ekki þetta blóð aðeins vegna taugaveiki, heldur
einnig vegna hugsanlegrar sýkingar af völdum Bangs-
sýkla. Og á einu ári sýndi hann fram á fimm hundr-
uð tilfelli af öldusótt — fleiri tilfelli en komu fyrir í
allri Danmörku af taugaveiki og taugaveikisbróður.
Sama árið kom Carpenter auga á nýjan, hræðileg-
an möguleika. í New York fann hann Bangssýkil í
andvanafæddu barni, ótimaburði. Löngu áður hafði
læknir í New York, De Forest, veitt eftirtekt og
skýrt frá fósturlátum meðal bændakvenna á bæjum,
þar sem kýrnar voru smitaðar Bangssýklum. Hversu
margar mæður fæddu börn sín fyrir tíma í öllu land-
inu af því að hafa neytt ógerilsneyddrar mjólkur úr
kúm, smituðum Bangssýklum?
Dr. Martin Kristensen birti nýjar, uggvænar fregnir
frá Danmörku. Hann hafði rekist á átta konur, sem