Iðunn : nýr flokkur - 01.10.1934, Blaðsíða 49
IÐUNN
Með strandmenn til Reykjavikur.
335
ugga nokkuð um það, hvar þeir yrðu látnir sofa um
nóttina, því að um önnur rúm virtist ekki vera að
ræða á heimilinu en rúm hjónanna og heimasætunn-
ar. Að liggja í flatsæng á gólfinu virtist ekki vera
sérlega fýsilegt eftir að böðunarmennirnir höfðu setið'
þar inni og hrest sig á kaffidropanum. En úr þessu rættist
áður en minst varði, því að húsfreyja vísaði þeim til
hvílu í rúm dóttur sinnar. Var það vel hirt og þokkalegt.
Þessu næst sjá gestirnir, að húsfreyja opnar stóra
kistu, sem stóð fyrir innan hjónarúmið. Tekur hún að
hreiðra til í kistunni, og að því búnu lætur hún dótt-
ur sína hátta niður í hana. Þegar stúlkan er búin að
reyta af sér spjarirnar og er lögzt fyrir í kistunni,.
tekur húsfreyja að elta uppi tvo ketti, sem voru í
baðstofunni. En kerling var feit í meira lagi og stirð
í snúningum og náði því aldrei nema öðrum kettin-
um. Stakk hún kisu niður í kistuna til dóttur sinnar
og lokaði síðan kistunni. Þarna dúsaði heimasætan undir
kistulokinu, þegar Öræfingarnir fóru um morguninn.
Þann dag var stilt veður, og náðu ferðamennirnir
að Þjórsárbrú og gistu þar allir. Þegar þangað kom,
virtist skipstjórinn verða eitthvað einkennilegur, og
hvarf hann skyndilega úr hópi samferðamanna sinna.
Var hans leitað og fanst einsamall úti í hlöðu. Bráði
þá af honum aftur.
Daginn eftir var austan kaldi og snjókoma. Kom-
ust þeir þá út í Ölfus, og gistu strandmennirnir í
Auðsholti, en Öræfingarnir i Arnarbæli.
Næsta dag brauzt leiðangurinn yfir Hellisheiði og
kom í skuggsýnu um kvöldið að Kolviðarhóli. Þann
dag snjóaði mikið, og var færðin vond á heiðinni.
Daginn eftir, sem var hinn 6. febrúar, náðu þeir til
Reykjavíkur og komu þangað að áliðnum degi i