Iðunn : nýr flokkur - 01.10.1934, Blaðsíða 6
292
Dauðinn i mjólk.
IÐUNN
færi til að rannsaka sjúkdóminn, sem, án þess að
nokkurn óraði fyrir, lá í leyni fyrir mönnum í mjólk-
urbirgðum Evrópu og Ameriku. Þetta var viðkvæmt
mál. Þvi að hér var gengið nærri meiri háttar hags-
munamálum og blakað við státandi yfirborðsvísindum,
þar sem Bangssýkillinn, er olli langvinnum, nagandi
þjáningum og tærði sjúklingana með kveljandi köldu-
flogum og svitasteypum mánuðum og misserum
saman . . . átti sér því miður samastað í mjólkurkúm
hinna fullkomnustu og iburðarmestu kúabúa og jafnvel
þeirra, sem starfrækt voru undir visindalegu eftirliti.
Og annað eins var vitanlega meiri háttar hneyksli.
Og þegar Bangssýkillinn leyfði sér að gista slikar
aðalbornar kýr, mátti fara nærri um, hve heimakominn
hann hlaut að gera sig í hinum miður ættuðu kúm
heimsins. Alice Evans veitti sannarlega ekki af að
styðjast við hið rótgróna álit, sem rannsóknarstofan
í rauðu tígulsteinsbyggingunni hafði á sér fyrir óskeik-
ula nákvæmni. Það varð til þess, að visindamenn um
allan heim töldu sér skylt að leita eftir þeim ágalla
á mjólkurframleiðslunni, sem »öidusóitin« átti rætur
að rekja til.
Það var í samræmi við hinar beztu erfð kenningar
Rauðu rannsóknarstofunnar, að Alice Evans rígnegldi
staðreyndir sínar, eftir að hún sjálf var orðin svo
veik, að hún hafði fyrir löngu síðan haft gildar ástæð-
ur til að leggja niður alla vinnu. Það er langt frá
því, að hinar einkennilegu tilraunir hennar hafi orðið
til þess að uppræta úr mjólkurbirgðum Ameríku hinn
herskáa sýkil danska dýralæknisins, Bernhardts Bang.
En nú vitum vér svo mikið, einkum fyrir tilverknað
Alice Evans, að ég get varist hættunni með þvi að