Iðunn : nýr flokkur - 01.10.1934, Blaðsíða 48
334
Með strandmenn til Reykjavíkur.
IÐUNN
Daginn eftir var farið yfir Mýrdalssand. Þá var
austanbylur, en þó gott ratfæri, því að sandurinn var
stikaður og torfærur engar að farartálma. Um kvöld-
ið náðu þeir að Vík og gistu hjá Halldóri kaupmanni
Jónssyni og Þorsteini kaupmanni Jónssyni.
Frá Vík héldu þeir næsta dag í stormi og snjókomu.
Var kominn hnésnjór um kvöldið, er þeir komu að
Þorvaldseyri. Allir ferðamennirnir nema tveir gistu að
Eyri hjá Þorvaldi Björnssyni. Þar varð þeim sérstak-
lega starsýnt á hrossahnapp geysimikinn. Var þeirm
sagt, að Þorvaldur ætti þá 90 hross. Þá var á Eyrt
kerling ein gömul, sem skaraði fram úr öllum heima-
mönnum í að þekkja hrossin hvert frá öðru.
Tveir úr leiðangrinum, þeir Björn á Kvískerjum og
Gísli í Svínafelli, héldu þetta kvöld með sjö hesta út
að Vossabæ og gistu í eystri bænum. Þar voru húsa-
kynni mjög lítil og léleg. Baðstofan var litlu meira
en rúmlengd, með moldargólfi. Rúm voru þar tvö,
sitt undir hvorum vegg. Sváfu hjónin í öðru rúminu>
en dóttir þeirra uppkomin í hinu, því að fleira fólk
var ekki á bænum.
Þennan dag var baðað fé í Vossabæ. Komu böð-
unarmennirnir votir inn í baðstofuna, eftir að Öræf-
ingarnir voru seztir inn, og drukku þar kaffi. Rann
úr þeim bleytan niður á moldargólfið, og var þá frem-
ur óvistlegt um að litast í baðstofunni.
Húsfreyjan talaði margt við Öræfingana og var
mjög óðamála. Sagði hún þeim margar sögur úr ná-
grenninu. En einkum varð henni þó tíðrætt um^hjálp-
semi sína við nábúana. Nefndi hún það sem dæmi,
að hún hefði getið nágrannakonu sinni heila skán
undir pottinn, þegar baðað hefði verið þar á bænunr
Þegar fór að líða að háttatíma, tóku gestirnir að