Iðunn : nýr flokkur - 01.10.1934, Blaðsíða 3
IÐUNN
Dauðinn í mjólk.
Eftir Dr. Paul de Kruif.
Þýtt hefir Vllmundur Jónsson, landiæknir.
Formáli þýðandans.
Óþarft er að beiðast afsökunar á þvi að haia þýtt og komið
á iramfæri eftirfarandi kafla úr nýrri bók eftir Dr. Paul de
Kruif: Baráttan viO daudann, og nægir að benda á það, að
auk þess sem hér á i hlut hinn fróðasti læknir, er hann rétt-
nefndur töframaður í frásagnarlist og vafalaust liinn snjallasti
alþýðufræðari um heilbrigðismálefni, sem nokkurn tíma hefir
tekið sér penna í hönd. Þar að auki er hér um að ræða efni,
sem mjög hefir verið uppi á teningunum hér á landi nú undan-
farið og verið rætt — að visu af smáu listfengi, en þó af
enn minni skynsemi, jafnvel af þeim, sem nokkurs hefði mátt
af vænta um hið síðarnefnda.
Það er vafalaust fræðilega rétt, að nýmjólkin er kostamest
•og heilnæmust fæða »eins og hún kemur úr kýrspenanum*
og að nokkur hætta er á, að heilnæmi hennar kunni að spill-
ast að einhverju ieyti við gerilsneyðingu, jafnvel liverri
gerilsneyðingaraðferð sem beitt er. En þetta er aðeins frœði-
lega rétt og einungis önnur heilbiigðishlið »mjólkurmálsins«.
Hin hliðin, sem að reyndinni veit, er sú, að mjólkinni verður
okki náð úr kýrspenanum og þvi síður komið viðs vegar til neyt-
enda, hreinni og ómengaðri, heldur atast hún margvislega
og er framar hverri fæðu ekki aðeins miðill, heldur gróðrar-
stia hverskonar gerla og þar á meðal sýkla ýmsra hinna skæð-
ustu sjúkdóma og jafnvel banvænna sótta. Enn nær hvorki
1ækni né þekking til að setja til fullnustu undir þessa hættu
— með öðru en gerilsneyðingu — og er alt annað eftirlit
með mjólkurframleiðslunni þvi miður ófullnægjandi, hversu
visindalegu sem þvf er ætlað að vera. Sýkingarhættan af
ðgerilsneyddri mjólk, sem dreift er út á meðal almennings,
er svo mikil, að sú vafasama hætta, sem á þvi er, að nær-
Iðunn XVIII. 19