Iðunn : nýr flokkur - 01.10.1934, Side 11

Iðunn : nýr flokkur - 01.10.1934, Side 11
IÐUNN Dauðinn i mjólk. 297' voru líka hnöttóttir gerlar, en meira spennandi, þvii að þeir voru ef til vill hættulegir. En enginn hafði. beinlínis bannað Alice Evans að fást við ílöngu gerlana, stafgerlana, ef á milli varð fyrir henni. Og þannig atvikaðist það í einni tómstundinni, að hún kom auga á stafgeril danska dýralæknisins, Bern- hardts Bang. Hún hafði verið mjög vandvirk og gætt klasakokka1 sinna með ýtrustu nákvæmni. Hún hafði þannig fært sönnur á, að sumir af þessum hnöttóttu gerlum gefa frá sér fílabeinsgult litarefni, og skilur það þá frá frændum þeirra, sem lita sig mógula, og enn frá öðr- um, sem teljast til sömu fjölskyldu, en eru fagurlega sóleyjargulir á lit . . en það lá öldungis utan við hennar verkahring að grenslast eftir því, hvort nokkr- ir af þessum agnarpeölingum gætu unnið kanínum. mein. »Höfundurinn færir hér með þakkir Dr. George M. Potter, sem hefir annast sýkingu tilraunadýranna og krufningarnar«, skrifar ungfrú Evans í einni sinna vísinda- legu ritgerða, sem enginn getur talið beinlínis spennandi. Hún skýrði þar frá því, án þess að nokkur hefði skemtun af, eða áhuga á því, annar en hún sjálf, að sumir þessara litarsterku kokka gætu í raun og veru drep- ið kanínur. Af þessari staðreynd dró Alice Evans ein- kennilega ályktun — þegar tekið er tillit til hins vísindalega hreinlætis, sem kýrnar búa við í hinum viðhafnarmeiri kúabúum: »Þetta, sem hér hefir verið skýrt frá, styður þá kenningu, sem nú vinnur sér fleiri og fleiri áhangendur, að helzt eigi að geril- sneyða alla mjólk«. Þetta var vissulega mjög fljótfærnisleg ályktun, þvíi að hvað var um að fást, þó að ein eða tvær kanín-

x

Iðunn : nýr flokkur

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Iðunn : nýr flokkur
https://timarit.is/publication/442

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.