Iðunn : nýr flokkur - 01.10.1934, Page 14

Iðunn : nýr flokkur - 01.10.1934, Page 14
300 Dauðinn í mjólk. IÐUNrt löngu, ráðist á, sezt að í og sennilega kvalið, pyntað- og drepið einhvern íbúann á eyjunni Malta. En einu gilti . . . Maltasýkillinn og hinn frægi kúa- sýkill Bernhardts Bang voru grunsamlega líkir hvor öðrum , . . það var blátt áfram furðulegt. Ef báðir sýklarnir voru litaðir með sama litarefni, og væri litið af einum og á annan, var nærri ógerningur að kom- ast hjá að ruglaþeim saman . . . ef maður var þá heið- arlegur og merkti annað sýnishornið með A, en hitt með B. Alice Evans var nú orðin blóðþyrst, þó að öfgar séu að koma þannig orðum að sálarástandi ungrar stúlku, sem ekki er veiðimaður og jafn blíðlynd og kvenleg sem hún var. Nú hreinræktaði hún og rann- sakaði herskara af Maltasóttarsýklum, og nákvæmlega á sama hátt hreinræktaði hún og rannsakaði herskara af Bangssýklum. Og hver gat séð muninn, þegar þeir voru athugaðir þar, sem þeir uxu, þrifust og tímguð- ust hvor við annars hlið? Hún lét þá hafast við, við hverskonar skilyrði — við samskonar mismunandi skilyrði — og báðir höguðu sér eins og voru eins á að sjá við öll þau skilyrði lifsins, sem unt er að bjóða gerlum í rannsóknarstofu. Hún tók á öllu því hugrekki, sem hún átti til, og sótti heim Dr. John M. Buck í sjúkdómadeild Rann- sóknarstofunnar fyrir dýralífeðlisfræði . . . en þessi Dr. Buck mátti ekki einungis það, sem Alice Evans var óheimilt, heldur var það hans sérgrein: að gera dýratilraunir með gerla. Hana brast kjark til þess að segja það viðstöðulaust og blátt áfram, því að engan hafði órað fyrir því áður, en loksins stundi hún því upp, að Bangssýkillinn, sem lét kýrnar

x

Iðunn : nýr flokkur

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Iðunn : nýr flokkur
https://timarit.is/publication/442

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.