Iðunn : nýr flokkur - 01.10.1934, Side 32

Iðunn : nýr flokkur - 01.10.1934, Side 32
318 Dauðinn i mjólk. IÐUNIM verið höfðu vanfærar, er þær tóku öldusóttina. Sjö af þeim hafdi leystst höfn. 10. Nú gerðust atburðirnir svo tíðir, að erfitt er að greiða þá i sundur og skýra frá þeim í réttri tíma^- röð. í Iowa tók ötull rannsóknarmaður, A. V. Hardy, að skýra frá tugum sjúkdómstilfella meðal íbúa í smá- bæjum, aðallega bænda og slátrara. Sífelt yptu menn öxlum. Nú voru það ekki svo mjög mjólkuriðnaðar- mennirnir, sem létu dólgslega, en miklu fremur almennir borgarar, sem ekki kærðu sig um að neyta gerilsneyddrar mjólkur og voru einlæglega sannfærð- ir um, að gerilsneyðing væri óþörf hótfyndni. Og þó að menn fái þessa öldusótt, þá er það lítið verra en slæm ofkæling, sagði smákaupmaður einn. »Ekkert er fjær sanni«, sagði Hardy. Hann hafði rekist á nokkur tilfelli í Iowa, þar sem sjúkdómurinn stóð yfir í hálfan fjórða mánuð og á sumum jafnvel i tíu mánuði. »Ég get fullyrt, að menn þurfa ekki að sjá mörg tilfelli til þess að þeim skiljist, hve mikl- um þjáningum og eymd þessi réttnefndi endalausi sjúkdómur veldur. Það ber brýna nauðsyn til að leita allra ráða til að koma í veg fyrir hann«. En menn dóu ekki úr honum. Og þó gátu menn dáið úr honum. Hardy tók að skýra frá tilfellum, sem leiddu til dauða, tveimur, þremur, fjórum — og síð- an mörgum i Kansas, þar dó fólk, óþektir sjúklingar að vísu, en þeir dóu. Andstæðingar öldusóttarinnar, sem höfðu áhuga á að rugla staðreyndirnar, fóru nú að káfa í staðreyndum Hardys. Margir sjúklingar Hardys voru bændur, eða menn, sem unnu að því að búa um ket, eða brytjuðu flesk, sem stundum var

x

Iðunn : nýr flokkur

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Iðunn : nýr flokkur
https://timarit.is/publication/442

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.