Iðunn : nýr flokkur - 01.10.1934, Side 40

Iðunn : nýr flokkur - 01.10.1934, Side 40
326 Dauðinn i mjólk. IÐUNN voru sams konar og þeir, er hann hafði fundið í mjólk- inni, sem sjúklingarnir höfðu drukkið. Og honum höfðu verið sendar báðar tegundir Bangs- sýklanna úr blóði veslings manns, sem hafði dáið úr öldu- sótt í Iowa — önnur tegundin var með vissu upp- haflega úr kú, það þurfti kolsýru til að hreinrækta hana, en hin dafnaði aftur á móti vel án þess, svo að það hlaut að vera Bangssýkill úr svíni, ef það var þá ekki Maltasóttarsýkill Bruces. En hverju máli skifti það — úr því að allir þrír gerlarnir lifa og dafna í kúm, berast frá þeim í mjólk- inni og eru allir hættulegir mönnum. 13. Það var engum efa bundið, að sýklarnir hötuðust við Alice Evans, sem átti upptökin að allri herferðinni gegn þeim. Hún drógst upp af þeirra völdum i sjö ár, þeir spiltu beztu árum æfi hennar og gerðu hana ellihruma fyrir aldur fram. Jafnframt fékk hún þá upp- reisn, að hún hætti að vera gleymd spákona. Hún hlaut sanngjarna viðurkenningu, sem raunar gaf ekki mikið í aðra hönd, er hún var kjörinn forseti Qerla- fræðingafélags Ameríku. Nú gat hún á fundum sagt alt, sem hún bar fyrir brjósti, enda leysti hún frá skjóðunni og sagði, að ef unt væri að koma tölu á alt það fólk, sem klínt væri á vitlausri sjúkdómsgrein- ingu, en hefði í raun og veru öldusótt . . . ja, þá . • Hún brosir sennilega og gleymir það augnablikið þeim Brucessýklum, sem hún ber í sér, svo að lítið ber á, þegar hún hugleiðir, hvernig hinar upphaflegu spásagnir hennar hafa ræzt. Árið 1929 kunnu skýrsl- ur að herma frá öldusótt í öllum ríkjum Bandaríkj-

x

Iðunn : nýr flokkur

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Iðunn : nýr flokkur
https://timarit.is/publication/442

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.