Iðunn : nýr flokkur - 01.10.1934, Qupperneq 90
376
Bækur.
iÐUNN
II.
islenzkir þjóOluettir eiga að gefa heildaryfirlit yfir þjóð--
háttu, siðu og þjóðtrú íslendinga á siðari öldum, og hefir
höfundurinn skipað efninu í tiu kafla, er hann nefnir: Dag-
legt líf, — Aðaistörf manna til sveita, — Veðurfarið, — Skepn-
urnar, — Hátiðir og merkisdagar, — Skemtanir, — Lifsatriðin.
— Heilsufar og lækning, — Hugsunar- og trúarlifið, — Húsa-
skipun og byggingar. Sjómenskuna eina hefir sr. Jónas ekki
komist yíir að lýsa, og vantar hana alveg i bókina. En innan
hvers kafla er efnið tekið að mestu, þar sem þvi verður við
komið, í aldursröð. Auðvitað ráða heiinildir og skortur þeirra
nokkuð útliti kaflanna; þvi er höfundur fjölorðari um hinar
siðari aldir og samfeldast það, sem hann segir eftir sinu eig-
in minni og gamalla manna. Sumstaðar hafa fyllri heimildir
birzt eftir hans daga, enda náði hann ekki að nota Landsbóka-
safnið til neinnar hlítar. Eigi hefir hann heldur þurausið-
heimildir samtíðar sinnar um alt land, en sjálfur var hann.
kunnugur bæði á Suður- og Norðurlandi og gat því nokkurn
veginn ákveðið tvö ólikustu skaut landsins, þar sem aðrir
landshlutar raða sér í milli/Og auk þess hafði hann sagnir
af öðruin landshlutum, frá skólasveinum eða öðrum, sem
hann gat náð til; gerir útg. góða grein fyrir heimildarmönn-
um hans í formálanum.
Þessi óumflýjaniega takmörkun ritsins er kannske að sumu
leyti galli, en honum fylgja þó tveir miklir kostir. í fyrsta lagi
er ritið í heild sinni læsilegra, er þvi er ekki iþyngt með of
miklu efni. í öðru lagi opnar bókin nýtt rannsóknarsvið nærri
því i öllum greinum þjóðlifsins. Athugull lesandi mun sakna
þar ýmislegs, sem hann átti að venjast, og finna fjölmargt,
sem hann kannast ekki við. Hver kynslóð hefir sína sögu að
segja, og sú saga verður að einhverju leyti ólik í ólíkum.
landshlutum. En með safn Jónasar fyrir franian sig er ólíku
hægara um vik að auka við, »enda er í alla staði æskilegt að
það verðijgert«, eins og útgefandi segir í lok formálans.
III.
Eg skal því að lyktum geta ýmislegs, sem eg saknaði við
lestur verksins, eða sem eg hafði vanist á annan veg en þar
er lýst Á uppvaxtarárum minum i Breiðdal i Suðurmúla-