Búnaðarrit - 01.01.1903, Blaðsíða 19
15
þegar tekið er tillit til þess, að til þess að framfleyta sauð-
fjárbúi þarf mimii vinnuafla til heyskapar, eu til þess að
framfleyta jafn-nytjamiklu kúabúi; en allir vita liver þrösk-
uldur vinnufólkseklan er, eigi síður hér en annarsstaðar. Og
enu verður að geta þess, að sveitin á nægilega rúmgóð af-
réttarlönd fyrir jafuvel sex siunum fleiri sauðfénað, en uú er
til í honni, og að því skapi viðunandi kostagóð.
Þannig eru því kostir Staðarsveitar frá náttúrunnar
hendi, eins og á hefir vorið hent, þessir: Miklar slægjur
auðfengnar án mikilla urabóta, til sauðfjárræktar og naut-
penings jöfnum höndum, en þó öllu fremur til hins fyrnefnda,
fjörubeit við sjávarsíðuna allmikil, vetrarbeit að öðru leyti
talsverð eigi óvíða og afréttarlönd næg. Útræði þarf varla
að nefna, því það mun varla verða nema til stuðnings, þeg-
ar bezt lætur.
Þegar um kosti Breiðuvíkurhrepps frá náttúrunnar liendi
er að ræða, skiftir mjög í tvö horn við Staðarsveit, þó góð
sé; er það að vonum, því Breiðuvíkurhreppur mun, þegar
alls er gætt, óhikað mega teljast kostaauðgastur allra lireppa
Snæfellsnessýslu, þeirra er plóglausir eru. Eins og yður er
kunnugt fyrir eigin sjón, er Breiðavíkin sjálf (þ. e. frá Oxl
og út að Sleggjubeinsá austan Sölvahamars) svo grasauðug
og mok-slægjurnar á engjum, auk hinna fágætu túna þar,
svo miklar, að eg get ímyndað mér, að leita verði um marg-
ar sýslur áður en fundnar verði slíkar engjar, jafnvíðáttu-
miklar og jafnsjálfgerðar til notkunar án endurbóta. Má
geta þess hér, að nákunnugur maður fullyrðir, að t. a. m. á
Litla-Kambi (sem er rúm 6 hndr. að dýrleika) megi heyja
árlega á engjum 30 til 40 kýrfóður, og að svo séu engjar
þar grasgefnar, að þar sem þær séu snegstar, slái meðal-
maður að minsta kosti 10 þurrabandshesta á dag. Sami
maður fullyrðir, að á næstu jörð, Gröf, (sem er 12 hndr. að
dýrl.) muni 2 karlmenn og 3 kveunmenn tafalaust geta heyj-
að 1000 til 1200 þurrabandshesta á slíku sumri og þetta
útlíðauda var. Og fleiri jarðir þar eru þessum nær jafnokar,
svo sem Knarrar-„pláss“jarðirnar, Stóri-Ivambur og Miðhús.