Búnaðarrit - 01.01.1903, Blaðsíða 298
294
Dæmi eru til, að veggir hafa verið steyptir tvöfaldir
eða þrefaldir með loftholi á milli; en vinnan við það er
svo umstangsmikil og verður svo kostnaðarsöm, að það má
heita frágangssök að byggja svoleiðis veggi. Áu efaverður
miklu ódýrara og heutugra að steypa hæfilega stóra steina
og hlaða veggina úr þeim, þegar þeir eru orðnir harðir.
Með því að svoleiðis byggingarlag er algerlega óreynt enn,
að minsta kosti hér á landi, get eg ekki sagt með vissu,
hve þykkir veggirnir j)uríi að vera, eða hvað stóra verður
hentugast að hafa steinana; reynslan kann að sýna, að
sumt af því, sem eg hér legg til, ætti heldur að vera öðru-
visi.
Ytri veggurinn þarf að vera svo þykkur, að ekki geti
rignt gegnum liann; eg hugsa að 4'/„ þuml. þykkur veggur
mundi duga, ef steinarnir eru vel steyptir og vaudlega lagðir
í steiulím, svo hvergi verði opið milii þeirra. Millibilið
milli ytri og innri veggs getur verið meira eða minna; 3 til
41/„ er algengast erlendis. Þykt innri veggsins fer eftir
því hve mikinn þunga hann á bera; hann á því að vera
þykkri neðan til en ofan til í háum húsum. Á efsta lofti
er 4‘/„ ])uinl. eflaust nóg þykt, og ef vel á að vera, þarf
þyktin svo að vaxa um 3 þuml. niðureftir fyrir hvei-t loft.
Þó álít eg að í húsum til sveita megi komast af með 4‘/„
þuml. þykkan iunri vegg fyrir ofan kjallara, efhúsiðer ekki
hærra en ein stpfuhæð og port, eða tvær litlar hæðir. í>ó
verður altaf að binda vel saman ytri og innri vegg, svo að
sá innri beri ekki jmngann einn, heldur hjálpi sá ytri til.
Þetta fæst með því að hafa samfelt lag af bindingssteinum
undir bitum, umgjörð kringuin alla glugga og dyr og svo
stein og stein þar á milli, eftir því sem þarf. Vel verður
að gæta þess, að þessir bindingssteinar leiði ekki um of
raka inn í húsið, eða hita út úr því. Raki að utan getur
komist inn gegnum þá, ef þeir eru svo gljúpir, að þeir
sjúga í sig vatn, annaðhvort gegnum endann, sem kemur
fram í ytri veggfletiuum, eða gegnum hliðarnar trá steinun-
um í ytri vegguum, ef vatn hefir komist í hann. Verjast