Búnaðarrit - 01.01.1903, Blaðsíða 310
306
og ísland er. Húsin í Oskarsström eru öll úr tró, súm eru
allsnotur, en flest eru frernur f'átældeg. Aðalatvinna þessara
héraða er annars skógarhögg, því fjarskaleg landflæmi eru
vaxin skógi í þessum sveitum, allar járnbrautarlestir eru
hlaðnar timbri og í hverjum smábæ eru'stórir timburhlaðar,
en árnar reka margar sögunarmyllur.
Landslag er hér mjög fagurt fram með áuui, skógi-
vaxnir hálsar og fell, mjög svipað því sem er í Thuringen
uærri Arnstadt, þar eru mest barrskógar, en hér eru nærri
eintómir birkiskógar með bletturn af furuskógi og einstöku
eikartrjám og reyni á víð og dreif. Hinn smærri gróður
er mjög íslenzkur, þó hann só stórgerðari, af því suinar-
hitinn er meiri. I grasbrekkum eru fiflar, sóleyjar og hvít-
ur smári, i hlíðum blóðberg og bláklukka, víða er stórvaxið
lyng með háum einirunnum, sumstaðar aðalbláberjalyng og
mikið af jarðarberjum, njólar kringum bæina og græðisúrur
vallhumall og baldursbrá og alislenzkur jurtagróður uærri
hvar sem litið er: Höggormar eru hór margir í lyngi og
steingörðum, við höfum séð þá nokkrum sinnum hlykkjast
yfir vegi og eru þeir æði viðbjóðslegir, furða hve sjaldan
verður slys að þeim og þó ganga allir krakkar hór ber-
fættir:
Þegar eg lit yfir hin skógi vöxnu fell í kringum Osk-
arström, dettur mér opt í hug að svona hafi ýmsir hlutar
íslands verið útlítandi í fyrstu landnámstíð. í fellum og
hálsum eru hór undir jarðvegi og skógi alstaðar ísuúuar
klappir einsog á Islandi með stórgrýti og grettistökum ofan
á, en sumstaðar þykkar, fornar jökulöldur; birkiskógurinn,
sem vex á þessum grýtta jarðvegi, er ekki mikið stórvaxn-
ari en margir islenzkir skógar hafa verið; flest birkitróu
hafa sömu digurð og hæð eins og tréu í Gatnaskógi við
Hallormstað eða í Þórðarstaðaskógi í Fnjóskadal og viða
eru birkilurkar jafndigrir í islenzkum mógröfum. Ef skóg-
urinn fram með Nissan væri rifiun og tættur að íslenzkum
sið, muudu þar að eins verða eftir graslaus klappaholt og
fell með einstökum moldarflögum og grashuausum alveg