Búnaðarrit - 01.01.1903, Blaðsíða 169
165
Alt þetta svæði er mjög hallalítið, en viða greiðfært
og gott afsláttar. Með því að gera skurði i það og flóð-
garða nægilega marga, mætti veita vatni á það og gera
það alt að hezta engi. En það mundi kosta mikið, sjálf-
sagt ekki minna en 15,000 —20,000 kr. — En það er og
víst, að þegar búið væri að gera þetta land að áveituengi,
þá gæfi það mikið af sér. Af Staðar- og Víkurmýrum,
suður að Grafarholti, mundi fást, eftir að veitt hefði verið
á þær um nokkur ár, 25,000—30,000 kestar af heyi. —
Vatnið mundi slétta mýrarnar smátt ogsmátt oghækkaþær,
svo að þurka mætti heyið i þeim í flestum árum. Vatn til
áveitu iná taka úr Djúpukvísl, sem er í rauninni ein af
kvíslum Héraðsvatnanna.
Eg geri nú ráð fyrir, að slikt vatnsveitingafyrirtæki
sem þetta, muni þykja hýsna stórvaxið og ekki árennilegt
kostnaðarins vegna. En á hinn hóginn verður því eigi
neitað, að hér er um álitlegt engjaefni að ræða, sem hlýtur
að eiga framtíð, þó framkvæmd verksins verði frestað i
bráð.
En það, sem að mínu áliti er nauðsynlegt að gera
og ekki þolir bið, það er affærsluskurður eða aðalskurður
eftir mýrunum úr Miklavatni i Holtstjörn, er eg gerði
hallamælingu fyrir siðastliðið sumar. Hvað sem siðar
verður gert til umbóta þessu svæði, þá er það einmitt
þessi skurður, sem byrja verður á eða sem fyrst þarf að
gera. Þegar hann er kominn, er fyrst auðið að þurka
mýrarnar sem þarf, fyr ekki. Hann mundi meðal annars
taka á móti og flytja burt alt það mikla vatn, sem kemur
undan Langholtinu, og síðar mætti gera aðra minni skurði
í hann. Þessi aðalskurður úr Miklavatni í Holtstjörn þarf
að vera um 5000 faðmar á lengd og 8—14 fet á breidd að
ofan. Að gera hann nemur um 2000 dagsverkum eða 5000
kr. Annar kostnaður, svo sem brýr á skurðinn o. fl., á-
ætla eg 1000 kr. Eftir því verður allur kostnaður 6000
kr. — Jarðir þær, sem geta notið góðs af þessu verki, eru
fyrst og fremst Reynistaður og Yíkurtorfan; enn fremur
i