Búnaðarrit - 01.01.1903, Blaðsíða 103
Ö9
spurði eg hvað gjaldið er mikið alls, en það hefi eg heyrt að
þar á undan hafi ábúandi Ólafsvíkur haft, 10 sinnum meira
lóðargjald, en eftirgjaldið var af jörðinni. Túnblettirnir eru látn-
ir á leigu um 100 ár, falla þá endurgjaldslaust aftur til
landssjóðs. I'yrir dagsláttu tekið c. 4 kr. í ársleigu.
Þegar saman rann hér áður kaupmannseinokunin og
einveldi landsdrottins má ráða í áþján almennings. Og
hvernig andinn var, getur maður ráðið af því, að Arnar-
stapa-umboðsmaðurinn beinlínis tilskildi í byggingarbréfi
sínu fyrir Ólafsvík — eg hefi hér fyrir mér prentað bygg-
ingarbréf frá árinu 1787 —, að kaupmaðurinn léti fólkið í
„plássinu11 róa á bátum sfnum, „sm Jiað vœri skyldugt til
eftir yamalli hefð og venju“. Kaupmaðurinn átti meira að
segja að tryggja þennan góða gamla sið með sérstöku á-
kvœði í byggingarbréfunum, sem hann gæfi fyrir býlunum.
Dmboðsmanninum þótti vissara að taka þetta svona skýrt
fram, svo að ekkert misrétti gæti átt sér stað í þessu efni
um Snæfellsnes, hann gleymdi ekki „mannslánunum“ að
Ingjaldshóli, þegar hann var að byggja jarðirnar sjálfur
blessaður.
Snæfellsnes með klausturjörðunum hundrað, eða hvað
þær nú voru margar, og með verstöðunum góðu í kring um
Jökulinn, var fremur flestum hlutum landsins kongsland og
kaupmanna, þar sem á komst rniklu meira ófrelsi en aunars-
staðar, þeir voru svo sárfáir sem áttu með sig sjálfa og
gátu notið sín, og hér er sjálfsagt ein mjög svo veruleg
orsök til úrkynjunar fóllcsins og hnignunar þeirra hóraða.
Landssjóður er eflaust góður laudsdrottinn fyrir Ólafs-
vik, en óeðlilegt er það, að stórt bæjarfólag rísi upp án
þess að eiga með landið sem það lifir á. Yerðmæti lands-
ins skapast og vex með fjölgun fólksins, og það ætti að
koma fólkinu til góða, sem keinur þessu „lóða“-verði á jörð-
ina, og væri jafnframt hin sterkasta hvöt fyrir fólkið að
gjöra sér fólagseign sína enn verðmætari. Það er sjálf-
gefið, að þing og stjórn selur ekki neinum einstökum mauni
slíka fasteign sem Ólafsvík, en fólaginu í heild sinni ætti
7*