Búnaðarrit - 01.01.1903, Blaðsíða 138
134
4956 pund. Pundið af töðunni reikna eg á 3 aura (sjá að
öðru leyti um verðlag á mjólk og fóðri eftir gæðum „Fóð-
ur- og mjólkurskýrslur“ eftir höf.). Allur kostnaður við
báðar kýrnar, að undanteknu fóðrinu, er hinn sami og er
fullhátt að reikna hann 50 kr. um árið fyrir hverja kú. Á
móti þessum kostnaði reikna eg mykju og kálf undan hvorri
kúnni um sig á 50 kr., sem þó er fulllágt, sórstaklega að
þvi er betri lcúna snertir, sem hæði gefur meiri mykju — af
því hún étur meira — og betri kálf — til lífs. Samkvæmt
þessum reikning gaf hin fyrstnefnda kýr kr. 169,40 i hrein-
an ágóða yfir árið. en hin síðarnefnda að eins kr. 19,32.
Eg vil taka það fram, að þessi tvö dæmi, sein hór eru
tekin, heyra hvorki til hins versta eður hezta meðal kúa
vorra. l>annig er fjöldi kúa um alt land sem mjólkar minna
en 1680 potta, og einnig nokkrar, sem mjólka yfir 3584
potta. í hinum fáu mjólkurskýrslum í L og III. árgangi
Búnaðarritsius eru þannig tilfærðar tvær kýr, sem injólkuðu
4500 potta hvor um árið.
Auk þess að vita um hvað mikið hver kýr mjólkar
yfir árið og hvað miklu fóðri hún eyðir, er mjög áríðandi
að vita um feitimagn mjólkurinnar, því það er mjög mis-
munandi í mjólk úr ýmsum kúm. Feitimagn mjólkurinnar
er bezt að ákveða með feitimæli, en einnig má fara nærri
um það með því að athuga hvað mörg pund af mjólk (einn'
pottur sama sem 2 pund) þarf til hvers punds smjörs.
Þessir kostir kúanna, sem hór eru nefndir: að gefa
mikla og feita mjöllt fyrir tiltölulega lítið fóður, eru eins og
flestir aðrir kostir og ókostir dýranna arfgengir. Hið ein-
falda ráð til þess að eignast gott kúakyn er því að nota að
eins dýr, sem kafa áðurnefnda kosti til undaneldis. Þess her
þó vel að gæta, að til þess að þetta geti koiuið að tilætluð-
um notum, er nauðsynlegt að kynið só hraustbygt og galla-
laust, en þetta útheimtir aftur að úrval uudaneldisdýrauna,
uppeldi, fóðrun, hirðing og húsavist só i góðu lagi.
Eins og nú stendur, höfum vér tiltölulega mjög fáar
kýr, sem sameina hina ofannefndu góðu kosti i rikulegum