Búnaðarrit

Volume

Búnaðarrit - 01.08.1915, Page 8

Búnaðarrit - 01.08.1915, Page 8
166 BÚNAÐARRIT að hallinn á neðri hlið hennar sé 2 : 1 (tveir á móti einum) og á efri hliðinni 1 : 5. Stíflan verður þá 1 metri að ofan og 70 sentimetrum þykkri að neðan fyrir hvern metra af hæðinni. Lögun hennar verður þá lík og hún er sýnd á 1. mynd. Tökum við t. d. stíflu af sömu hæð og áður, sem sé 2 metra háa, þá er hún 1 metri að ofan og 2,4 (tveir metrar og fjörutíu sentí- metrar) á þykt að neðan. Sementið skal blanda þannig: 1 hluti af sementi á móti 4 af sandi. Stíflur úr sementsteypu geta verið lítið eitt þynnri, einkum ef þær eru háar. Blöndunin í þeim á að vera þessi: 1 hluti af sementi á móti 3 af sandi og 4 af möl. Áríðandi er að bæði sandurinn og mölin séu vel hrein og engin mold eða leir í þeim. Kostnaðurinn við stífluna fer ekki að eins eftir því, hve löng og há hún er, heldur er hann og undir því kominn, hve auðvelt eða örðugt er að framkvæma verkið. Þetta er svo mismunandi, að eg sé ekki til neins að tiltaka neinar ákveðnar tölur hér. Þó skal þess getið, að í grjót- og sements-stíflum mun hver teningsmetri kosta eitthvað á millum 10 og 25 kr., og getur þá hver og einn reiknað út eða lát.ið reikna fyrir sig, hvað stíflan muni hér um bil kosta, þegar hann hefir ákveðið stærð hennar. Það er mjög mikilsvert, ef hægt er að veita vatn- inu burtu á moðan á stíflugerðinni stendur. Annars verður að láta það renna í gegnum botnrásina, sem bezt er að sé trékassi. Lokunni þarf að koma haganlega fyrir, svo að þægilegt sé að draga hana upp og ofan, og ekki leki mikið með henni. Bezt er að hafa járnkarm og járnloku, en fyrir sveitabæi verður það oitast of dýrt. Út úr tjörninni eða pollinum, sem myndast ofan við stiflugarðinn, gengur, eins og áður var skýrt frá, skurðurinn til þróarinnar við efri enda pípnanna. Gangi

x

Búnaðarrit

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Búnaðarrit
https://timarit.is/publication/595

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.