Búnaðarrit

Årgang

Búnaðarrit - 01.08.1915, Side 12

Búnaðarrit - 01.08.1915, Side 12
170 BÚNAÐARRIT þá má flytja úr einu herbergi í annað, og því nota sama ofninn til skiftis í tveim eða fieiri herbergjum. Væri aflstöðin ekki nema 4—6 hestöfl, þá mætti samt hafa einn ofn, sem full not væru að, þegar ekki væri soðið. Viðast á sveitabæjum mun borga sig bezt að byggja 5—6 hestafla rafmagnsstöðvar; þó fer þetta miög eftir staðháttum, og er sumstaðar hægt að hafa stöðina mun stærri án mikils aukins kostnaðar. En minna en 3 hesta afl ættu stöðvarnar helzt ekki að hafa. Afl til smá- mótoia — t. d. til þess að snúa skilvindu, strokk eða hverfisteini eða til smiðjublásturs — verður altaf afgangs þann tíma dags, sem lítið eða ekkert er soðið eða hitað. Til þess nú að finna, hve mikið vat.n er nauðsyn- iegt, til þess að framleiða 3, 4, 5, 6, 7 eða 8 hestöfl, verður fyist að athuga, hvar stifla megi lækinn og hve mikla fallhæð megi fá, án þess þó að pípurnar verði langar, þvi við það vex kostnaðurinn, eins og áður var minst á. Fallhæðina, þ. e. hæðarmuninn á þeim stað, þar sem vatnið yrði tekið í pípurnar, og þeim stað, þar sem pípurnar enda og stöðvarhúsið ætti að standa, má mæla á mjög einfaldan hátt, jafnvel með lámæli einum. Það geta flestir gert, en eí ekki, þá er auðvelt að ná t. d. í einhvern búfræðinginn til þess. Sé nú fallhæðin fundin, má reikna út, hve mikið vatn þurfi að vera í læknurn, þegar hann er minstur, til þess að framleiða einhverja ofangreinda hestaflatölu. Við þenna útreikning verður að taka til greina, að nokkur hluti af orku eða vinnumagni vatnsins eyðist og tapast i núning í pipunum, túrbínunni og i rafmagnsvélinni og við reimdráttinn, só rafmagnsvélin knúð með reim frá túrbínunni. Eigi nú túrbínan að framleiða einhverja ákveðna hestaflatölu, þarf orka vatnsins að vera mun meiri, því gera má ráð fyrir, að um 35% tapist í píp- unum og túrbínunni. Til þess að túrbinan hafi t. d. 67s hestafl, þarf orka vatnsins að vera 10 hestöfl. Þegar talað er um stærð stöðvarinnar, er hún miðuð við afl

x

Búnaðarrit

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Búnaðarrit
https://timarit.is/publication/595

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.