Búnaðarrit

Årgang

Búnaðarrit - 01.08.1915, Side 39

Búnaðarrit - 01.08.1915, Side 39
BÚNAÐARRIT 197 jafnvel stærri stöðin orðið ódýrari en sú minní, ef stað- haettir eru þeim mun hentugri. VII. Hirðing vélanna. Vélarnar þurfa mjög litla hirðingu, en því meiri Qákvæmni. Aflagist eitthvað, þótt, lítils háttar sé, þarf strax að bæta úr því, annars getur það valdið stór- skemdum. Það er því nauðsynlegt, að menn þekki vél- arnar sem bezt, en á þessu er mikill skortur hér á landi. Allar viðgerðir eru dýrar, því hér verður vanalega að sækja menn langt að til viðgerða, ef einhvers þarf með. t>að virðist því nauðsynlegt og væri óefað hagnaður, að nógu snemma yrði farið að kenna mönDum hirðingu rafmagnsvéla og vatnsvéla, til þess að ekki færi líkt og hieð mótorbátana, sem öllum mun kunnugt. Sé nægjanlegrar nákvæmni gætt, þarf hirðingin ekki að vera nema létt hjáverk bóndans eða einhvers annars á heimilinu, og geri eg því ekki ráð fyrir, að bóndinn þurfi að reikna sér hirðinguna til útgjalda; upphæðin ýrði að minsta kosti mjög lítil. Um fram alt þarf að gæta þess, að vélarnar séu ávalt hreinar og vel smurðar, einkum áslegin. Einnig skal þess gætt, að einangrunin 8é í góðu lagi, og á það að sjást á einum mælinum, sem fyrr er um getið. í smurningsolíu og tvist til hreinsunar vélanna má gera ráð fyrir að eyðist 15—20 kr. á ári. Að endingu vil eg benda mönuum á hina ágætu ritgerð Jóns landsverkfræðings Þorlákssonar um sama efni, í „Lögréttu" VIII.—IX. árg., 50—60 og 1. tölubi. Er þar meðal annars einkar-skýr lýsing á orku vatnsins °g öðrum orkutegundum.

x

Búnaðarrit

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Búnaðarrit
https://timarit.is/publication/595

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.