Búnaðarrit

Volume

Búnaðarrit - 01.08.1915, Page 45

Búnaðarrit - 01.08.1915, Page 45
BÚNAÐARRIT 203 aðinn við þær of háa, og þeir munu verða mér sam- dóma um það, að ef nienn ætla sér í fullri alvöru að tryggja búfé landsmanna gegn liarðindunnm, þá inuni ekki duga að liorfa í þann kostnað, sem eg heti áætlað. Eg veit að til eru menn, en vona að þeir séu fáir, sem telja allar þær hallærisvarnir óþarfar, sem nefndar hafa verið, ekki að eins almennar heyfyrningar, heldur einnig forðagæzlu, fóðurforðabúr og bjargráðasjóð. — Þessum mönnum stendur þó auðvitað ekki á sama, hvernig fer um búfé þeirra og annara landsmanna. En þeir hafa ekki gefið sér tíma til að íhuga málið, og íylgja gömluin kenningum í hugsunarlcysi. Þá er ekki ólíklegt, að ýmsir mætir menn, sem eru meðmæltir þeim hallærisvörnum, sem lögin gera ráð fyrir, kunni að telja svo miklar og almennar heyfyrn- ingar, sem eg hefl nefnt, ekki að eins óframkvæmanlegar, heldur með öllu óþarfar og jafnvel skaðlegar. Þeir menn munu ætlast til, að fóðurforðabúr og bjargráðasjóður geti dugað. — Þeim vex í augum, að alt landið leggi fram árlega 135,000 kr. kostnað í heyfyrningum, og hver meðal hreppur 808 kr. Munu þeir telja miklu skynsamlegra að nota vel góðu árin — „taka gæs þegar hún gefst“ — hleypa þá upp fénaði og bæta ábýli og húsakynni, og liagræða að öðru leyti fyrir sér með arðinum af fénaðinura, ineðan vol árar, — þó að raaður knnni þá að inissa eittlivað af bústofn- inuin stöku sinnura, þegar liarðindin koina. Eg veit ekki, hvort margir hugsa eða tala þannig, en hitt er augljóst, að margir breyta eftir þessari kenn- ingu — líklega ilestir umhugsunarlítið. II. Eg hefl hér að framan sýnt, að það kostar mikið fé, að safna alment miklum heyfyrningum, og kemur

x

Búnaðarrit

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Búnaðarrit
https://timarit.is/publication/595

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.