Búnaðarrit - 01.08.1915, Side 47
BÚNAÐARRIT
205
Svo ætla eg nú að sanna með dæmum frá árunum
1882 og 1910, að það sé tilvinnandi, að safna svo mikl-
um heyfyrningum, að menn geti tekið á móti framúr-
skarandi harðindum hvenær sem vera skal.
Eg gat þess í Búnaðarritinu 1913, bls. 12—13, að
eftir því, sem ráða má af Landshagsskýrslunum, mundi
hafa fallið vorið 1882 í Geiradalshreppi í Barðastrandar-
sýslu og í Saurbæjarhreppi í Dalasýslu báðum til samans
sauðfé fyrir 15868 kr. Unglambadauði, gagnsmuna-
missir af lifandi sauðfé og fóður eytt í fallinn fénað á-
ætlaði eg að hefði verið 18495 kr. virði fyrir báða
hreppana. Þetta er til samans meira en 34000 kr.
Þetta var nú skaðinn, sem hrepparnir höfðu á sauðfénu.
En svo urðu báðir hrepparnir fyrir geysimiklu tjóni á
kúm og hrossum. Kýrnar urðu nytlausar, talsvert af
hrossum féll, og mörg svo mögur, að ekki voru fær til
brúkunar langt fram eftir sumri. Mundi þetta hvort-
tveggja ærin viðbót við tjónið á sauðfénu.
í þessum hreppum báðum til samans eru 39 jarðir,
og hefði þá eftir áætlun minni hér að framan heyfyrninga-
kostnaður þessara hreppa beggja verið 1209 kr. á ári.
Það er tæplega 1jn partur af skaðanum, sem heyskort-
urinn 1882 orsakaði hreppunum að eins á sauðíénu, og
líklega ekki meira en Vro partur, ef skaðinn á kúm og
hrossum væri t&lin með. — Og þó væri þá mikið tjón
ótalið, sem heyskorturinn olli hreppunum í þetta sinn.
í Búnaðarritinu 1913, bls. 13—15, gat eg líka um
vanhöld, sem eg vissi til að orðið hefðu í 3£hreppum
vorið 1910. Eg skal nú aftur taka dæmi af þessum
hreppum, til að sýna að það sé tilvinnandi, að^búa sig
ávalt undir harðan vetur. Skaðinn, sem|'þeir lireppar
urðu fyrir vorið 1910, að eins á sauðfénu, var alls yfir
36945 krónur. Jarðirnar í þessum hreppum eru 67, og
heyfyrningakostnaður allra hreppanna hefði því orðið
2077 kr. á ári, eða rúmlega Vi* partur af skaðanum
við vanhöldin á sauðfénu. Og það mun óhætt að full-